Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 22
Birgir hefur verið búsettur í Danmörku síðan árið 1997
og hefur síðan verið framkvæmdastjóri Domino’s Pizza á
Norðurlöndum. Spurður um hvemig það bar til að hann ásamt
Baugi og Straumi festu kaup á einni elstu stórverslanakeðju
Norðurlanda segist Birgir hafa haft augastað á félaginu um nok-
kurra mánaða skeið.
„Eg hef búið hér í Kaupmannahöfn í nokkur ár og hef sjálfur
verið viðskiptavinur Magasin du Nord. Eg hef hins vegar ekki
alltaf verið fyllilega ánægður með þjónustuna og vöruúrvakð og
því kviknaði hjá mér sú hugmynd að úr þessu mætti bæta. Eg
sá fyrir mér að til þess yrði að koma til þekking á smásölu og að
sjálfsögðu Ijármögnun. Eg ákvað að nefna þessa hugmynd mina
við Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra Baugs Group, í ljósi þess að
hann hefur sterk alþjóðleg viðskiptasambönd sem og reynslu af
smásölu og verkefnum sem þessum.“
Vantaði þehkingu á smásölu í rekstur Magasin Féiagið sem
staðið hefur að baki Magasin du Nord síðastliðin ár, A/S Th.
Wessel & Vett, hefur átt í rekstrarerfiðleikum um árabil og hefur
félagið leitað að hentugum tjárfestum lengi þrátt fyrir að ekki
fáist staðfest í hversu mörg ár leitin hefur staðið yfir. Félagið var
áður í eigu 1.700 hluthafa en þar af réðu 10 hluthafar yfir 85%
hlutaljár.
Þar voru stærstir Jyske Bank, sjóður WedellWedellsborg
íjölskyldunnar, tryggingafélagið Codan og Nordea Bank. Þannig
var félagið að mestu rekið af flármálafyrirtækjum og var stjómin
skipuð fulltrúum stærstu hluthafa, fulltrúum starfsmanna og
þekktum aðilum úr dönsku viðskiptalífi.
Birgir segir að helsta skýringin sem hann sjái á erfiðleikum
Magasin vera þá að verslunin hafi undanfarin ár verið rekin af
fólki sem ekki hafði nægilega reynslu til þess að reka félagið.
Þannig hafi samningsstaða félagsins við birgja verið slæm og svo
virðist sem þeir hafi nýtt sér þá stöðu.
, Að mínu mati hefur vantað inn í reksturinn þekkingu á smá-
sölu, sérstaklega í ljósi þess hversu samkeppnin hefur harðnað
mikið á síðustu ámm. Með tengslunum við Baug Group erum
Flaggskipið við Kongens Nytorv
ekktasta verslun Magasin du Nord stendur við Kongens
Nytorv í Kaupmannahöfn en þess utan eru reknar sjö aðrar
deildarskiptar stórverslanir, þ.á.m. 1 Alaborg, Oðinsvéum og
Arósum. Samtals velta þessar verslanir um 25-30 milljörðum
íslenskra króna á ári hveiju.
Magasin du Nord þróaðist úr litlu framleiðslufyrirtæki sem
stofnað var árið 1868 í Arósum undir nafninu A/S Th. Wessel &
Vett. Það varð árið 1879 að Magasin du Nord sem dró nath sitt
af Hotel du Nord við Kongens Nytorv, en fyrsta verslunin var
opnuð í hótelinu.
Verslunin við Kongens Nytorv þótti afar framsækin og þar var
til að mynda fyrsta lyfta á Norðurlöndum tekin í notkun. Um 130
árum síðar var Magasin við Kongens Nytorv svo fyrsta stórversl-
unin á Norðurlöndum til að geta tekið á móti viðskiptavinum
sínum beint upp úr neðanjarðarlestarkerfi Kaupmannahafnar.
Um 2.000 manns starfa hjá rekstrarfélagi Magasin.
Magasin du Nord var um árabil
flaggskipið í danskri smásölu.
Þekktasta verslun Magasin
du Nord stendur við Kongens
Nytorv í Kaupmannahöfn.
Virðuleg verslun. ,