Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 52
mun hagnast á því þegar upp er staðið. Það er frekar kostur en
hitt að vita hvar maður hefiir hana.“
Andstæðingur Steinunnar Valdísar í póltík tekur undir að
hún virki sem afskaplega heiðarleg manneskja og er viss um
að hún eigi eftír að standa sig upp á punkt og kommu sem
embættísmaður í stöðu borgarstjóra. Hins vegar bendir sá hinn
sami á að Steinunn Valdís eigi það til að taka sig of hátíðlega og
vanti þessa leiðtogaútgeislun. „Það er í sjálfu sér ekkert að því
að hún passi vel upp á það sem hún segir, t.d. í fjölmiðlum, en
áreiti fjölmiðla er mikið þegar maður er borgarstjóri og ég er
viss um að þar muni reyna töluvert á hana.“
Annar bættí við: „Þótt hún sé ekki persónuleiki sem kemur
á óvart er þó aldrei að vita nema hún muni einmitt koma á óvart
sem borgarstjóri."
Reykvíkiltgur í húð og hár Steinunn Valdís Óskarsdóttir
er fædd 7. apríl 1965 og er því hrútur. Hún er dóttir Óskars
Valdemarssonar húsasmiðameistara og Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur húsmóður, en bæði eru þau látin. Steinunn Valdís á
einn bróður, Pétur Þorstein, sem starfar sem viðskiptafulltrúi
á ræðisskrifstofu íslands í New York. Samband þeirra systkina
er náið og gott og að sögn hafa þau systkini þótt hvort öðru
ráðagóð á mikilvægum stundum. Móðir þeirra dó 1978, þegar
Steinunn Valdís var 13 ára og bróðir hennar 10 ára. Slík lífs-
reynsla setur auðvitað sín spor í allar sálir en kunnugir segja að
Steinunn hafi þá öðlast töluvert af þeirri ábyrgðartílfinningu og
staðfestu sem þyldr einkenna hana í dag.
Steinunn Valdís er borinn og bamfæddur Reykvíkingur,
ólst upp í Laugameshverfinu og býr þar í dag, nánar tiltekið við
Rauðalækinn. Hún gekk i Laugamesskóla og síðan Laugalækjar-
skóla og útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum við
Sund. Þessi útskriftarárgangur á að minnsta kostí tvo fulltrúa
í æðstu stjómunarstöðum landsins, Steinunni Valdisi og Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Þess má
geta að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri,
varð stúdent frá forvera MS, Menntaskólanum við Tjömina.
Maki Steinunnar Valdísar er Ólafur Haraldsson, hönnuður
hjá NM (Nonna og Manna). Þau giftu sig 1992 og eigafimm
ára dóttur, Kristrúnu Völu, sem bytjar líklegast námsferilinn í
Laugamesskólanum eins og mamman.
I pólitík Afskipti Steinunnar Valdísar af pólitík hófust fyrir
alvöm í Háskólanum þar sem hún var formaður Stúdentaráðs
fyrir Röskvu. Þegar hún hættí sem formaður Stúdentaráðs, 1992,
þurftí lítið til að blása eldií hinar pólitísku glæður. Og það var pylsa-
þyturinn frá Kvennalistanum sem kveikti bálið - baráttumáiin þar
Stelnunn Valdís Óskarsdóttir
Fædd 7. apríl 19B5. • Stúdentspróf frá MS 1986. • B.A. í sagnfræði fná Hf 1992
Formaður félags sagnfræðinema við Flí 1989-1990.
(Stúdentaráði Flí 1990-1992 fyrir Röskvu.
Formaður Stúdentaráðs FHf 1991-1992.
(stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1992-1994.
Starfskona Rannsóknarstofu í kvennafræðum árið 1992.
Framkvæmdastjóri Hallveigarstaða 1994-1997.
Starfaði á skrifstofu Kvenfélagasambands (slands 1992-1994.
Einn stofnenda Grósku, samtaka jafnaðarmanna og félagshyggjufólks.
Borgarfulltrúi frá 1994.
í byggingarnefnd Reykjavíkurborgar 1994-1998.
í stjórn SSF11994-1999, þar af formaður 1997-1999.
Formaður íþrótta- og tómstundaráðs 1994-2002.
Varamaður í hafnarstjórn 1994-2002.
Formaður Jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar 1996-1998.
í miðborgarstjórn 1998-2002.
í borgarráði 1998-2002.
Formaður samstarfsnefndar um lögreglumálefni 1998-2002.
í skipulags og umferðamefnd 1998-2002.
Fyrsti ritari Samfylkingarinnar.
I framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar 2000-2001.
Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar:
Skipulags- og byggingarnefnd, formaður.
Samgöngunefnd.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sf., varaformaður.
Hverfisráð Laugardals.
Hverfisráð Hlíða, varamaður.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Stjórn lánatryggingasjóðs kvenna.
Stjórn Skipulagssjóðs.
Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga
í jafnréttisráði frá 2003.
Launanefnd sveitarfélaga.