Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 113
segir Eric Figueras sem nýverið tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá TölvuMyndum. FV-mynd: Geir Ólafsson
Eric Figueras hjá TölvuMyndum
Texti: ísak Öm Sigurðsson
TblvuMyndir hf. voru
stofnaðar 1986 og eru
nú stærsta hugbúnaðar-
fyrirtaeki landsins og meðal
stærri fyrirtækja hér á landi.
Umsvif fyrirtækisins felast
aðailega í framleiðslu, sölu
og rekstri hugbúnaðar. Eg
hlakka mikið til að takast á
við spennandi verkefni hjá
TölvuMyndum sem snúa
mestmegnis að þvi að efla ein-
stök félög á kjörsviðum Tölvu-
Mynda og fjölgun verkefna
erlendis," segir Eric Figueras
sem nýverið tók við starfi
framkvæmdastjóra viðskipta-
þróunar hjá TölvuMyndum.
„TölvuMyndir er með
starfestöðvar á 18 skrifstofum í
12 löndum víða um heim. Alls
starla um 400 manns hjá fyrir-
tækinu nú, 250 hér á landi og
um 150 manns í starfsstöðvum
erlendis. Viðskiptavinir Tölvu-
Mynda koma frá 20 löndum
og eru yfir 1.000 talsins. Velta
fyrirtækisins verður yfir 3,5
milljarðar króna á þessu ári.
TölvuMyndir eru eitt af fáum
fyrirtækjum sem er með
„Microsoft Gold Certified"
viðurkenningu og vinnum
við mikið með Microsoft hug-
búnaðinn. Stækkun fyrirtæk-
isins, bæði hérlendis og sömu-
leiðis erlendis, er meðal for-
gangsmála hjá fyrirtækinu."
„TölvuMyndir starfa mest-
megnis á niu sviðum, með
hugbúnaðarkerfi fyrir sjávar-
útveg, fjármálastarfsemi,
flutningageirann, heilbrigðis-
geirann, sveitarfélög, veitur,
auk viðskiptalausna, rekstrar-
þjónustu, samþættingu og sér-
lausria. TölvuMyndir hata m.a.
séð íslensku heilbrigðiskerfi
fyrir hugbúnaði sem styður við
kjamastarfsemi viðkomandi
stofnana Yfir 90% af viðskiptum
í Kauphöfl Islands em afgreidd
í gegnum kerfi félagsins. 76%
landsmanna fá orkureikninga
í gegnum okkar kerfi. Félagið
er stærsta félag landsins á
sviði UT rekstrarþjónustu, og
er einnig stærst á sviði sér-
lausna fyrir intemetið. Tölvu-
Myndir em stærsta fyrirtækið
á sviði viðskiptahugbúnaðar
fyrir sjávarútveg í heiminum.
Auk þess að starfa á Islandi
em starfsstöðvar víða um
heim, s.s. í Noregi, Hollandi,
Þýskalandi, Bretlandi, Kanada,
Bandaríkjunum og Chile.“
Eric Figueras, sem tæddur
er í Katalóníu á Spáni 1967,
lauk MS-gráðu í rafmagnsverk-
fræði frá Háskólanum í Barce-
lóna árið 1992 og er einnig
með MBA gráðu hjá alþjóða
viðskiptaháskólanum IMD í
Sviss trá árinu 2001. Eiginkona
Erics er Björk Þórarinsdóttir,
aðstoðarframkvæmdastjóri
KB-banka, og eiga þau tvær
stúlkur, fimm og tveggja ára.
„I námi minu í Barcelóna fékk
ég námsstyrk frá þýska fyrir-
tækinu Siemens og fór til starta
hjá því fyrirtæki í Þýskalandi
og Bandaríkjunum í 5 ár sem
vörustjóri fyrir GSM íjarskipta-
kerfi árin 1991-96. Þess má
geta að starfsmenn Siemens
em töluvert fleiri en íbúar á
Islandi, rúmlega 400 þúsund
manns. Frá Siemens fór ég til
starfa hjá Philips í Frakklandi
sem yfirmaður vömstjóra fyrir
framleiðslu farsíma á alþjóða-
markaði Philips í Frakklandi
þar sem ég var í þijú ár.
Við fjölskyldan tókum
síðan ákvörðun um að flytja til
íslands, ekki síst að mínu frum-
kvæði, og fyrstu 6 árin, 1998-
2004, starfaði ég að ýmsum
verkefnum, og nú síðast sem
forstöðumaður verkefna-
stjórnunar og vömþróunar
hjá Símanum." Undanfarin
ár hefur Eric einnig gegnt
starfi stjórnarformanns hjá
hugbúnaðarfyrirtækinu Track-
Well. „Það em ekki nema
nokkrar vikur síðan ég kom til
starfa hjá TölvuMyndum.“
Ahugamálin hjá Eric em
margvísleg og er Island sér-
lega heppilegt til að sinna
hugðarefnum hans. „Eins og
margir aðrir Islendingar er
ég kominn með jeppadellu
og hef sérstaklega gaman af
því að fara á skíði með svif-
dreka. Eg geri ráð fyrir að ég
hafi ferðast meira um Island
en margir aðrir. Annars hef
ég gaman af því að stunda
tennis þegar ég fæ tækifæri
til þess, enda má segja að
líf fjölskyldu minnar á Spáni
snúist töluvert um þá íþrótt.
Bróðir minn er til dæmis
atvinnumaður í tennis. Einnig
hef ég mjög gaman af þvi að
skokka,“ segir Eric.Hi
113