Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 70
KONUR í VIÐSKIPTALÍFINU
það með ýmsum mælingum, s.s. með blóðþrýstingsmælingum.
Nafnið á fyrirtækinu setur því skemmtilegan ramma utan um
okkar starfsemi, segir okkur hvert við eigum að horfa.
Nú stöndum við á nokkrum tímamótum því það er verið að
þrengja að okkur með lyflaverð sem er að lækka, enda stendur
smásala á lyflum í smásölu varla undir rekstri apóteka. Því
sækjum við meira í okkar kjamastarfsemi sem er bæði lyf og
heilsa. Verslun okkar í Kringlunni er fyrst apóteka til að bjóða
upp á „optik“, þ.e. sjónmælingar, linsur og fleira af þvi tagi.
Við framleiðum lyijatengdar vörur, erum m.a. að setja á
markað smyrsl og kremgrunna á sviði grasalækninga og í Bret-
landi er að koma á markað vara sem heitir „TÆR“, þar sem vísað
er til þess að varan sé hrein og tær, á ensku „clear“.“
- Hugleiða Islendingar þegar þeir kaupa lyf, hvað þau kosta og
hver framleiðir, eða kaupa þeir bara það sem að þeim er rétt?
.ýUmenningur er mjög meðvitaður um lyfjaverð og hvers
konar lyf er verið að kaupa. Þetta er reyndar hluti af miklu stærri
neytendavakningu, fólk vill vita hvað það setur ofan í sig, og það
á ekki bara við um mat Okkar starfsfólk þarf að vera faglega vel
að sér um t d. virkni lyfja og vítamína, og eins að hlusta á viðskipta-
vininn og greiða úr hans óskum og vandamálum."
- Stærstur hluti starfsfólks Lytja og heilsu er kvenfólk. Er það
meðvitað eða tilviljun?
„Stór hluti afyreiðslufólks í allri smásöluverslun er kvenfólk.
Það er þvi ekkert öðru vísi hjá okkur en mörgum öðrum fyrir-
tækjum. En um helmingur lytjafræðinga í dag eru karlmenn,“
segir Hrund Rudolfsdóttir framkvæmdastjóri.S!]
Helga Lára Hólm
FRAMKVÆMDASTJÓRI ÍSFUGLS
Isfugl í Mosfellsbæ rekur sláturhús, kjötvinnslu og dreif-
ingarstöð fyrir afurðir alifugla. í sláturhúsinu er slátrað
Helga Lára Hólm framkvæmdastjóri ísfugls.
kjúklingum, kalkúnum og unghænum allan ársins hring.
Framleiðsla hefur aukist mikið undanfarin ár vegna vaxandi
eftirspumar á fuglakjöti, og þá sérstaklega fersku.
Núverandi hluthafar Isfugls em Markís ehf., sem á 70%, og
Sláturfélag Suðurlands sem á 30% hlut. Isfúgl selur vömr undir
þremur merkjum, Kjúlla, sem er ferskur kjúklingur, Isfugl,
sem er frosinn kjúklingur, og Hvíti kalkúninn sem er ferskur
kalkún.
Helga Lára Hólm hefur verið framkvæmdastjóri Isfugls sl.
timm ár, en þar áður hafði hún starfað á skrifstofu fyrirtækisins
í 10 ár. Helga Lára hefur sjálf verið kjúkHngaframleiðandi að
Selvangi uppi í Mosfellsheiðinni í hartnær þijá áratugi og hefur
auk þess eignatengsl gegnum eignarhaldsfélag Isfugls.
„Eg er mikið til sjálfmenntuð, en ég var einn vetur í
verslunarskóla. En eftir allan þennan tíma veit ég auðvitað all-
mikið um kjúklingaræktun,“ segir Helga Lára.
- Það er eiginlega ekki hægt að tala við framkvæmdastjóra
kjúklingabús án þess að spyrja hvemig reksturinn gangi. Er
þetta enn mikil „brekka"?
„Þessi fimm ár, sem ég hef verið hér, hafa verið ansi „töff‘,
en árið 1999 lenda kjúklingaframleiðendur í þessu óskaplega
kamphylofári sem var þessari atvinnugrein mjög erfitt. I kjöl-
farið verður mikil offramleiðsla og verðið fer niður úr öllu valdi,
sérstaklega árið 2002 og hluta til 2003. íslandsfugl á Dalvík
kom þá inn á markaðinn og auk þess var mikil uppbygging
og framleiðsluaukning á Móabúinu í Mosfellsbæ. Keppinautar
okkar hafa ýmist orðið gjaldþrota eða afskrifað miklar skuldir,
en Isfugl hefur allan þennan tíma verið réttum megin við
núllið. I ár sjáum við að ástandið er hægt og bítandi að skána.
Það hefúr dregið úr framleiðslu og hún að komast í jafnvægi,
og það er að ganga á þessar miklu birgðir sem vom fyrirliggj-
andi,“ segir Helga Lára.
Helga Lára segir kjúklinganeyslu hafa aukist nokkuð sl. ár,
og það sé að hluta til á kostnað fiskneyslu, sem sé afskaplega
dýr. I umræðunni um feitan mat komi kjúklingakjöt mjög vel
út, enda fitusnautt kjöt. Fólk sé enn nokkuð hrætt við sýkingu,
en almenningur sé farinn að vanda sig mun meira hvað varðar
meðferð kjötsins. Auk þess megi lesa varúðarráðstafanir á
umbúðunum, m.a. hvað varðar meðferð áhalda.HH
Laufey Eyjólfsdóttir
FRAMKVÆMDASTJÓRI TOPPFISKS
Toppfiskur við Fiskislóð á Grandagarði hefur verið starf-
ræktur frá árinu 1979 og telur nú um 80 starfsmenn.
Fyrirtækið rekur vinnsluhús sem búið er fullkomnasta vinnslu-
kerfisbúnaði sem völ er á til að fullvinna hráefni með sem
skjótustum hætti í gegnum vinnsluna. Fyrirtækið framleiðir
ferskan og frosinn fisk, þorsk og ýsu, til útflutnings, aðal-
lega til Bretlands, þar sem fýrirtækið hefur verið ráðandi á
þeim markaði, sérstaklega í ferskum afurðum og með nýjar
afurðir í frosnu. Toppfiskur viðheldur gæðum með fullkomnu
70