Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 76
KONUR í VIÐSKIPTALÍFINU
brauðblöndur, fiystiefiii, súra og sykur. Markmið Komax er að
sjá öllum notendum, jafnt stómm sem smáum, fyrir hveiti.
Framkvæmdasljóri Komax, Svava Liv Edgarsdóttir, telur að
það hafi aldrei þvælst fyrir henni að vera kona í þessu starfi, hún
sé alin upp meðal þriggja bræðra og eina stelpan í móðurfjöl-
skyldunni í liðlega 20 ár, og svo eigi hún sjálf 3 stráka.
Svava lauk prófi í matvælafræði frá Háskóla Islands 1997
og diplomaprófi í viðskiptafræði á sviði gármála og reksturs frá
Háskólanum í Reykjavík 2003.
A ámnum 1998 til 2000 starfaði hún sem verkefnastjóri hjá
Iðntæknistofriun og á ámnum 2000 til 2003 sem sérfiræðingur
og verkefnastjóri hjá Umhverfisstofnun. Hugmynd hennar var
að samnýta matvælafræði- og rekstramámið til þess að komast í
stjómunarstöðu hjá fyrirtæki.
Mjög háþróað fyrírtaeki Svava segir að starfið hjá Komaxi sé
því í raun eins og klæðskerasaumað fyrir sig, og því hafi hún
talið sig eiga góða möguleika á að hljóta starfið í samkeppni við
hátt í 100 umsækjendur vegna samsetningar á hennar reynslu
og menntun.
„Þetta er ekki mannmargt fyrirtæki, að jafriaði 12 til 15 manns,
vegna þess að það er mjög háþróað, tæknivætt og sjálfvirkt, og
mannshöndin kemur ekki víða nálægt, en það er verið að mala
allan sólarhringinn.
Valgerður Kristjánsdóttir, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga.
Fyrirtækið framleiðir Jjórar tegundir af hveiti með mismun-
andi baksturseiginleika. Það er nauðsynlegt að geta valið td.
próteinríkt hveiti í ítölsk brauð, hveiti í handverksbakarí annars
vegar og hins vegar verksmiðjubakarí sem em tæknivæddari og
kaupa aðra tegund. Fjórða tegundin fer svo Ld. í kexverksmiðj-
umar og sælgætisgerðir.
Við mölum einnig rúgmjöl og flytjum inn 200 vöruflokka,
sem er nánast allt það sem bakaríin em að nota 1 dag. Þar má
nefna konditorívörur, súkkulaði, massa, öskjur o.fl. Við reynum
að fylgja þróuninni hjá bakaríunum sem sum hver em að þróast
yfir í að vera kaffi- og veitingahús. Viðskiptavinimir, bæði bakarar
og hinn almenni neytandi, halda tiyggð við Komax-hveitið þrátt
fyrir mikla samkeppni. Það sýnir mikla „vömmerkja-tiyggð“ við
Komax-merkið, enda hafa fagmenn treyst á hveitið um árabil,“
segir Svava Iiv Edgarsdóttir, framkvæmdastjóri Komax. HD
Valgerður Kristjánsdóttir
KAUPFÉLAGSSTJÓRI KAUPFÉLAGS VESTUR-
Húnvetninga
11algerður Kristjánsdóttir hefur verið kaupfélagsstjóri Kaupfélags
■Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga í rúmt ár og er fyrsta
konan sem gegnir því starfi, og aðeins þriðji kven-kaupfélagsstjóri
landsins. Aflar hafá þær verið á Norð-Vesturlandi, hinar tvær hjá
Kaupfélagi Ospakseyrar og Kaupfélagi Hrútfirðinga.
Valgerður er Eyfirðingur og lærði fiskeldisfræði og síðan
iðnrekstrarfræðingurfráHáskólanumáAkureyri.Hófviðskipta-
fræðinám með augastað á endurskoðun, en hvarf frá því námi
og segir það hafa verið gæfuspor. Valgerður var framkvæmda-
stjóri fóðurverksmiðjunnar Laxár á Akureyri í 6 ár, og vildi
skipta um starfsvettvang. Þá sá hún starf kaupfélagsstjóra
auglýst, og var ráðin.
- Það hljóta að fylgja því bæði kostir og gallar að reka fyrir-
tæki á ekki stærri stað en Hvammstanga.
.Auðvitað, og stundum þarf maður að fara í burtu og fá
sér ferskt loft. Það er fylgst með hveiju fótspori mínu, enda
er kaupfélagið homsteinn atvinnulifsins og samfélagsins. Þó
er hér öll þjónusta, og ungt fólk er að sækja hingað aftur eftir
nokkra stöðnun. Þó hefur sáralítið verið byggt hér af íbúðar-
húsum síðustu tvo áratugi þar til á þessu ári.
Hér er starfrækt rækjuverksmiðja, Vegagerðin hefur
hér þjónustu fyrir héraðið, hér em tvær pijónastofur, en
kaupfélagið rekur einu matvöruverslunina eftir að starfsemi
Verslunar Sigurðar Pálmasonar lagðist af. Starfsemi sjúkra-
hússins hefur að mestu breyst í hjúkmnarheimili.
Hér er enn rekið svona gamaldags kaupfélag með smásölu-
verslun, sláturhúsi sem sækir viðskipti vestur í Búðardal og
austur að Blönduósi, kjötvinnslu, byggingarvömverslun, pakk-
húsi og flutningadeild. Mjólkursamlag hefur hætt starfsemi og
bændur leggja inn mjólk á Blönduósi eða í Búðardal, en þetta
er fyrst og fremst sauðfjárræktarhérað," segir kaupfélagsstjór-
inn á Hvammstanga.H3
76