Morgunn - 01.06.1971, Blaðsíða 15
DJÖFI.AFRÆDI OG SVIKAMYLLUR
9
Vísimli
trúfræðinnar.
og ofstæki, unz allir hætta að taka mark á þessurn þrautleiðin-
legu hræsnurum með kreddustagli Jieirra og trúarlegu monti.
Það mætti virða þeim vísindamönnum til
vorkunnar, sem aldir hafa verið upp í efnis-
hyggju og guðleysi, þó að viðbrögð þeirra
gagnvart spíritisma yrði neikvæð í fyrstu. Furðulegra er hitt,
að menn, sem valið liafa sér að ævistarfi að hoða trú á sinn
upprisna meistara, hvort heldur það eru klerkar eða kennarar
þeirra, skuli misskilja sitt hlutverk svo herfilega að fara að
berjast eins og Ijón gegn rannsóknum á sviði eilífðarmálanna
og telja það til „óhæfu“ að reynt sé að sanna eina meginkenn-
ingu kristindómsins og þá, sem trúarhreyfingin er auðsjáan-
lega sprottin frá, að Jesús reis upp frá dauðum.
Segir svo í Nýja testamentinu, að hann hafi komið til þess
í heiminn að leiða i 1 jós lífið og ódauðleikann og þetta hafi
hann gert áþreifanlega með upprisu sinni, er hann dvaldist
með lærisveinum sínum nokkra hríð sýnilegur og kvaðst
mundu verða með þeim alla daga, eins og trúarbók kristinna
manna vottar. Þannig hófst kristindómurinn með upprisu
meistarans, sem sagt hafði við lærisveinana: Ég lifi og þér
munuð lifa!
Eru það þá ekki einkennileg guðfræðivisindi af þessum út-
völdu, „trúuðu“ mönnum, að leitast við á þennan hátt að
ómerkja orð „drottins sins“ og hamast gegn þvi að þeim skuli
vera trúað? Ekki ætti það neinu að spilla, þó trúarkenningin
væri sönnuð. En sé „trúuðum mönnum" meinilla við það, get-
ur þá trúin verið eins mikil og af henni er látið?
öðruvisi leit Páll postuli á þetta mál. Hann segir í fyrra
Korinthubréfinu: „En ef nú er prédikað, að Kristur sé uppris-
inn frá dauðum, hvernig segja þá nokkurir á meðal yðar, að
upprisa dauðra sé ekki til? En ef ekki er til upprisa dauðra, þá
er Kristur ekki heldur upprisinn. En ef Kristur er ekki upp-
risinn, þá er ónýt prédikun vor, ónýt líka trú yðar.“
Páll snerist fyrst til kristinnar trúar, er meistarinn birtist
honum upprisinn og þá snerist hann lika undir eins. Og eins
og orð hans votta byggist trú hans fyrst og fremst á uppris-