Morgunn - 01.06.1971, Page 19
DJÖFI.AFRÆÐI OG SVIKAMYLLUR
13
og hvað frá f jandanum. Þess konar hleypidómar mundu aðeins
skekkja og skæla niðurstöðu rannsóknarinnar. Að greina sund-
ur heiðna miðla og kristna er vitanlega engin vísindi.
Eins og ég hef drepið á, þýddi orðið „ske-
3 :.rm maður“ oftast í fornu máli hræsnari. Séra
ræ ' e*lna^ J. H. vill láta það merkja shaman, það er
anum st sl j ir. Látum þag g0tt heita. En þegar hann
þykist vera að gera gabb að miðlum og svívirða þá og hefur þá
frammi hin venjulegu svikabrigzl eins og háttur er þeirra, sem
litið eða ekki hafa kynnt sér fyrirbrigðin, sést honum yfir eitt
atriði, þótt merkilegt megi heita um svo lærðan mann: Hann
gleymir alveg að geta um það, að sjálf Biblían er troðfull af
dulrænum frásögnum frá fyrstu blaðsíðu til hinnar síðustu, og
er hvergi getið um fleiri skemenn en einmitt þar.
Hví beinir prófessorinn ekki geiri sínum að þessum ske-
mönnum, sem slógu vatn af kletti, breyttu staf sínum í högg-
orm, létu jörðina gleypa óvini sína, fóru í eldlegum vagni til
himins og töluðu við Jahve og fluttu þjóð sinni skilaboð frá
honum?
Það skyldi þó ekki vera, að prófessorinn tryði þessum sögum
eins og nýju neti og teldi þær hafnar yfir allan efa, enda þótt
hann telji áþekk afrek „heiðinna miðla“ ekki annað en svik og
hindurvitni? Þarna er það, sem vísindum hans hlekkist á vegna
fyrirframkreddunnar.
Voru þessir skemenn lika 99 prósent svikarar og að einum
hundraðasta hluta innblásnir af djöflinum? Eða, ef þessir voru
innblásnir af Guði, liví skyldi það þá vera útilokað, að skemenn
annarra þjóða kunni einnig að hafa verið það, þar sem fyrir-
brigðin eru yfirleitt áþekk hvar sem er og þó að aldir renni?
Einhvers staðar stendur, að guð fari ekki i manngreinarálit.
Og þó að Gyðingar héldu því fram um sjálfa sig, að þeir væru
sérstaklega útvaldir og guði þóknanlegir, og að skemenn þeirra
væru einir i sambandi við þann sanna Guð, sem væri afbrýðis-
samur og þyldi engan sér við hlið nema Andskotann, þá þvkir
fáum þetta sennilegt nú í dag. Held ég varla að nokkur hleypi-
dómalaus rannsókn eða almenn vísindi mundu fortakslaust