Morgunn - 01.06.1971, Síða 33
PRÉDIKUN í ANDA SPÍRITISMANS
27
var of hár og hliðum hans var of vandlega lokað. Veggur
hleypidómanna og heimskunnar, veggur sjálfsþóttans og hrok-
ans, veggur ljósfælninnar og drottnunargirninnar, veggur eig-
ingirninnar og illskunnar. Þarna stóð Jesús fyrir utan. Þarna
stóð sannleikurinn og drap á dyr. Þarna stóð fólkið fyrir innan,
harðlokað inni. Enginn vegur inn fyrir sannleikann. Enginn
vegur út fyrir fólkið. Nema eitt hlið. Hlið hörmunganna, písl-
anna, smánarinnar, dauðans.
Um það hlið varð sannleikurinn að fara inn. Um það hlið
varð fólkið að fara út.
Guð almáttugur varðveiti okkur og okkar þjóð!
Nú er nýr sannleikur kominn til hennar og drepur á dyr.
Nýr sannleikur og gamall þó. Sá sannleikur, að vér getum, af
eigin reynd, þegar hér í heimi, fengið áreiðanlega vitneskju
um það, að algóður faðir okkar á himnum láti ekki slokkna lífs-
ljós okkar í dauðanum, að hann sleppi ekki af okkur hendinni
fremur fyrir það, þó að öll jarðnesk bönd slitni; að hann fylgi
okkur út á haf viðskilnaðarins og flytji okkur öll til fegurri
stranda, þar sem við fáum að hitta alla þá, sem við höfum unn-
að, og eigum meiri kost en hér á því að gera okkur grein fyrit'
kærleika hans og aðhyllast hann.
Hvernig tekur nú þjóð vor þessum sannleika? Verða lileypi-
dómarnir og heimskan, sjálfsþóttinn og lirokinn, ljósfælnin og
drottnunargirnin, eigingirnin og illskan — verður þetta allt
jafn-óviðráðanlegt hér á landi eins og með Gyðingum fyrir
1900 árum? Við vitum það ekki. Guð einn veit það.
Ekki virðist þessi sannleikur vera sérstaklega voðalegur. Eng-
inn virðist þurfa að vera verr farinn, þó að hann hleypi hon-
um inn. Finnst ykkur nokkur muni þurfa að verða verri mað-
ur eða ófarsælli maður fyrir það, að hann viti, að hann eigi að
lifa eilíflega og að algóður guð vilji vera með honum um tíma
og eilífð? Finnst ykkur líklegt, að nokkurar stoðir farsældar-
innar brotni við þá þekkingu? Sumir eru að tala um, að ef
þeir fari að aðhyllast þetta, þá hrynji einhver ósköp, sem þeir
hafi reist vonir sínar á. Guð varðveiti þjóð vora fyrir ofurmagni
vitleysunnar!