Morgunn - 01.06.1971, Síða 46
40
MORGUNN
nánum vinum. En það var engu líkara en fólk fyndi á sér að
hún væri að koma; og það beið hennar. Segir hún jafnan sögur
af Madame Helenu Blavatsky, hinum mikla guðspekingi, sem
sagt var að fylgdi bjölluhljómur hvar sem hún kom. En i raun-
inni er miklu áhrifameira að kynnast frú Garrett sjálfri: Rúss-
neski kvenpresturinn kvaðst vera í sambandi við hina miklu
kennara sína (mahatmana) langt inni á hálendum Tíbets. En
frú Garett kvaðst hins vegar vera algjörlega jarðbundin, þrátt
fyrir þá ótrúlegu sálrænu hæfileika, sem hún hefur sýnt.
Eileen Garrett hefur engar háskólagráður og hefur engin
opinber leyfisbréf upp á það, að hún megi stunda lækningar.
En engu að síður hefur hún hjálpað og að því er virðist læknað
visindamenn, lækna, rithöfunda, útgefendur, einkaritara, sál-
fræðinga og geðlækna í hundraðatali, svo og harmi lostna for-
eldra og börn og jafnvel forsætisráðherra eins stórveldisins.
Þetta hefur þessi kona aðhafzt í hálfa öld, án þess að nokkuð
hafi dregið úr mætti hennar. Hafa hinir frægustu vísindakönn-
uðir í þessum efnum ýmist fyllzt aðdáun eða reiði eða ekki talið
sig vita upp né niður hvemig skýra eigi eða skilja þessa furðu-
legu hæfileika. Hefur enginn miðill gengizt undir aðrar eins
vísindalegar rannsóknir á hæfileikum sínum og frú Garrett,
sem jafnan hefur verið til þess reiðubúin. Hún er sennilega
einn allra mesti miðih á þessari öld og hafa hæfileikar hennar
verið rannsakaðir í tilraunastofum sálvísindanna víða um heim.
Ekki hefur því verið hægl; að vísa hæfileikum hennar á bug
með brigzlum um svik.
Þótt frú Garrett hafi ekki talið sig búa yfir
neinum yfimáttúrlegum hæfileikum, þá virt-
ist hún engu að síður geta skynjað staðreyndir og atburði, sem
flestu fólki var ókleift að ganga úr skugga um. Þannig gat hún
haldið á umslagi i hendi sér og fyrir atbeina hlutskyggni sinn-
ar sagt frá því með óhugnanlegri nákvæmni, að bréfið tilheyrði
óhamingjusamri stúlku í New Jersey, sem hafi haft misheppn-
að ástarsamband við ungan mann og sé nú á flótta til Texas
í áætlunarbifreið. Þessi tilraun var gerð undir vísindalegu eft-
irliti sálfræðings frá TJnion Thelogical Seminary í New York.
Hlutskyggni.