Morgunn - 01.06.1971, Síða 59
AÐSÓKN
53
legg. Þá segir Hjörvar mér, að piltur hafi komið í heimsókn
að Sólgarði snemma í ágúst. En hann hefur gaman af veiðum.
Daginn, sem hann dvelur þama, fer hann með stöng niður að
ánni. En i Eyjafjarðará rennur Núpá og kemur úr Sölvadal.
En undir moldarbarði, rétt við ármótin, finnur pilturinn lær-
legg. Hann tekur hann upp og skoðar hann, og kemst að þeirri
niðurstöðu, að þetta sé lærleggur af manni, sennilega karl-
manni, því að leggurinn var bæði stór og þungur.
„Jæja,“ segir hann við legginn. „Ég skal nú sjá um, að þú
komist í vígða mold, ef ég veiði vel í dag.“ Hann fekk bæði lax
og silung á stöngina. Um kvöldið kom hann heim i Sólgarð með
veiðina og lærlegginn. Hann afhendir Hjörvari legginn og bið-
ur hann að sjá um, að hann komist í vígða mold. Hjörvar þvær
legginn vandlega og leggur hann á hiliu í einni skólastofimni.
Þessari frásögn er nú að verða lokið. Hjörvar segir, að engir
geti gizkað á, hver þessi maður var. En annað hvort hafi hann
orðið úti eða dmkknað í Núpá, og svo borizt með straumnum
niður eftir ánni og leggurinn skolazt upp undir moldarharðið
þar, sem pilturinn fann hann.
Mig langaði til að vita meira um afdrif þess, sem legginn átti,
og eins, hvort um karl eða konu hefði verið að ræða. Ég fór því
fram á það við Hjörvar, að hann sýndi lækni legginn, og það
gerði hann. Fylgir hér á eftir umsögn hans. Varð ég litlu nær,
nema hvað ég fékk vissu fyrir því, að leggurinn væri af manni,
karlmanni, sem hefði verið frekar stór vexti, og þótti sýnilegt,
að leggurinn hafði lengi legið í vatni. Má af því draga þær
ályktanir, að maðurinn hafi dmkknað. Þó þarf það ekki að
vera. Líkamsleyfar hans geta með einhverjum hætti hafa bor-
izt í ána. Af þeim áhrifum, sem ég varð fyrir, tel ég langlík-
legast, að hann hafi orðið úti í blindbyl og hörkufrosti. En vit-
anlega geta hvorki ég né aðrir fullyrt neitt um það, því að eng-
inn virðist vita neitt um uppmna hans né ævilok.
Ég hef oftar orðið fyrir aðsóknum, og segi ég lítilsháttar frá
því í bókinni Dulrœn reynsla mín, sem kom út 1967.
7. október 1970.