Morgunn - 01.06.1971, Side 72
ÆVAR R. KVARAN:
HÖFUM VIÐ LIFAÐ ÁÐUR?
Erindi flutt í Neskirkju i nóvembermánuði 1970.
Hvort líf sé að þessu loknu hefur verið mikið rætt og um
það hafa verið skrifaðar hækur í þúsundatali. Er mikið um slík-
ar bækur á íslenzku. Hitt er sjaldnar rætt, hvort við höfum átt
einhverja tilveru áður en við fæddumst í þennan heim. Við
skulum nú velta .þessari spurningu dálitið fyrir okkur og byrja
á grunni, sem ekki verður um deilt.
Við erum hér á jörðunni og göngum í líkamlegri mynd í gegn
um ýmis konar reynslu ásamt milljónum annara. Við fæðumst
inn í þessi skilyrði hjá einhverri þjóð og í sérstaka fjölskyldu.
Og að því er við bezt getum séð, ráðum við engu um það. Við
skulum þá fyrst lita á hina sorglegu hlið lífsins, því hún vekur
hugsandi manni miklu fleiri efasemdir og vandamál en hin
bjartari. Við vitum, að börn fæðast i heiminn við ólíkustu skil-
yrði. Sum hafa heilbrigða og hrausta líkami, eru vel gefin, dug-
leg, áhugasöm og fjörug, geta jafnvel með auknum þroska orðið
merkilegir hugsuðir. öðrum er blinda, heyrnarleysi, sjúkdómar
og greindarleysi frá upphafi fjötur um fót. Sumir fæðast i um-
hverfi, sem býður þeim ást og öryggi, hvatningu, menningu og
áhuga á fögrum hlutum; annara bíður spilling, sóðaskapur og
ljótleiki; þeim er að engu sinnt eða jafnvel beitt hryllilegri
grimmd af sjálfum foreldrum sínum. Sumra bíða tækifærin við
dyrnar til þess að bjóða þau velkomin; hjá öðrum ganga tæki-
færin hjá eða knýja of seint að dyrum. Er þetta allt saman
hreinni tilviljun undir orpið eða hefur Guð lagt á ráðin um