Morgunn - 01.06.1971, Side 81
HÖFUM VIÐ LIFAÐ AÐUR?
75
blindur? Jesús svaraði: Hvorki syndgaði hann né foreldrar
hans, heldur er þetta til þess, að Guðs verk verði opinber á
honum.“
Hér sjáum við strax, að það hvarflar ekki að lærisveinunum,
að maðurinn sé blindur nema fyrir sakir karmalögmálsins, þ. e.
annað hvort hann eða foreldrar hans hafi í fyrra lífi unnið til
þessarar afleiðingar.
Enn greinilegra er þetta í Matteusi 17. kafla: 10-13, þar sem
stendur: „Og lærisveinar hans spurðu hann og sögðu: Hví
segja þá fræðimennirnir, að Elía eigi fyrst að koma? En hann
svaraði og sagði: Elía kemur að vísu og mun færa allt í lag. En
ég segi yður, að Elía er nú þegar kominn, en þeir þekktu hann
eigi, heldur gjörðu við hann allt, er þá fýsti; þannig á og
mannssonurinn að þola þjáningar af hendi þeirra. Þá skildu
lærisveinarnir, að hann talaði við þá um Jóhannes skírara.11 —
Vart getur þetta greinilegra verið.
Annars virðist nokkuð augljóst, að endurholdgun sé nauðsyn-
leg á andlegri þroskabraut okkar, þvi Jesús sagði, að til þess að
ganga inn í ríki Guðs yrðum við að vera fullkomin, jafn-
vel eins fullkomin og vor himneski faðir er fullkominn. En
endanlegri fullkomnun er fæstum okkar hugsanleg að ná á
einni stuttri ævi sem nær aðeins yfir nokkra tugi ára. Þetta
hlýtur að taka okkur flest langan tíma, því mikið er að læra.
Þess vegna verðum við að ganga gegn um margar endurfæð-
ingar, sem þannig verða þrep á leið okkar að markinu mikla á
fjallstindinum.
Hvar var
Jesús?
Það er nokkuð athyglisvert, að síðari heims-
styrjöldin endaði með beitingu kjarnorku-
sprengju, sem hratt í hlað öld kjarnorku og
geimferða einmitt sama árið og hin stórmerku handrit fund-
ust við Dauðahafið árið 1945. En handrit þau, sem kennd eru
við Nag-Hammadi gefa í skyn, að Jesús hafi annað hvort ver-
ið Esseni, eða lagt stund á fræði þeirra, eða a. m. k. liaft við
þá náið samband árin sem Biblían er svo þögul um, þ. e. frá
tólf ára aldri hans til þrítugs. En Essener eru taldir liafa trúað
á endurholdgun. Ég hef einnig séð þeirri tilgátu haldið fram,