Morgunn - 01.06.1971, Page 83
HÖFUM VIÐ LIFAÐ AÐUR?
77
inum í dag, að ein stutt mannsævi nægi nokkrum manni til
fullkomnunar? Ég held að svarið hljóti að verða neikvætt. En
hvað þá? Kenningin um endurfæðingu virðist vera sú eina,
sem veitir okkur hér viðunandi svar.
Góðir áheyrendur. Þið megið ekki skilja orð mín svo, að ég í
þessari kenningu þykist liafa fundið allan sannleikann. Því fer
fjarri. Ég er þvert á móti ævinlega tortrygginn, þegar ég heyri
til manna, sem í eitt skipti fyrir öll telja sig hafa höndlað allan
sannleikann í trúarbrögðum eða öðrum efnum, sem snerta til-
veru okkar. Slíku fylgir oft sú skuggalega skoðun, að viðkom-
andi hafi eins konar einkaumboð frá sjálfum Skaparanum til
þess að boða þann sannleika sinn og jafnframt fordæma misk-
unnarlaust þá aðra sannleiksleitendur, sem levfa sér að vera á
öðru máli. Því miður sýnir saga sjálfrar kristinnar kirkju þetta
deginum ljósar. Svo er guði fyrir að þakka, að það er ekki
lengur lífshætta að vera ósammála höfðingjum kirkjunnar,
en sú var tíðin. Smám saman hefur kristin kirkja færzt í átt til
meira umburðarlyndis — meiri víðsýni. Það er heillavænleg
þróun. Sem fslendingur hef ég verið stoltur af því, hve íslenzka
kirkjan hefur lengi verið frjálslynd og fordómalaus sem stofn-
un. Ég hygg, að í þeirn efnum eigi hún sér fáa líka með öðrum
þjóðum. Ég vona að þessi samkoma, sem haldin er í íslenzkri
kirkju, megi skoðast svolítill vottur þess. Sú er skoðun mín, að
leitin að sannleikanum verði að vera fyllilega frjáls og óháð
hvers konar kreddum og kenningum. Við verðum að horfast í
augu við þá staðreynd, að þrátt fyrir vizku hinna miklu trúar-
bragðahöfunda heimsins, þá hafa áhangendur þeirra og eftir-
menn vafalaust misskilið þá að ýmsu leyti gegn um aldirnar,
afskræmt skoðanir þeirra og stundum skapað kreddur, sem
engan veginn geta samrýmzt hinum göfugu hugsjónum höf-
undanna. Það er ekkert óeðlilegt við það. Svona eru öll okkar
mannanna verk. Þrátt fyrir góðan vilja leiðir mannlegur breisk-
leiki okkur iðulega afvega. Engin trúarbrögð geta því verið full-
komin eða eina rétta sannleiksleiðin. Það er því gott að minnast
þess öðru hverju, að þegar allt kemur til alls, hlýtur sannleik-
urinn ávallt að vera öllum trúarbrögðum æðri.