Morgunn


Morgunn - 01.12.1981, Side 10

Morgunn - 01.12.1981, Side 10
104 MORGUNN Sr. Jón Auðuns var gerður að heiðursfélaga SRFÍ 1. júní 1972 í þakklætisskyni fyrir margháttuð og mikils- metin störf hans í þágu sálarrannsókna um rúmlega aldar- fjórðungsskeið og sem ritstjóra tímarits SRFl, Morguns. Með þökk og virðingu minnumst við afreksmanns er ætíð hélt hátt á loft merki frumherja sálarrannsókna hér á landi, þeirra Einars H. Kvarans og sr. Haraldar Níels- sonar, en óhætt er að fullyrða að alltaf var tekið eftir því sem sr. Jón Auðuns sagði, hvort heldur í ræðustól eða á öðrum vettvangi, er um sálarrannsóknir var rætt. Fyrir hönd Sálarrannsóknafélags Islands viljum við þakka sr. Jóni mikilsverð forystustörf hans í þágu félags- ins og sálarrannsókna almennt. Frá félaginu eru frú Dagnýju Auðuns færðar innilegustu samúðarkveðjur og SRFl kveður með þakklæti góðan for- ystumann og biður honum blessunar almættisins. F.h. Sálarrannsóknafélags íslands, Guðmundur Einarsson, Geir R. Tómasson.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.