Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 87
FRÁ FÉLÖGUNUM
181
Frá Sálarrannsóknafélagi Skagafjarðar
Á aðalfundi Sálarrannsóknafélags Skagafjarðar, sem
haldinn var á Sauðárkróki 15. apríl 1980, var frú Ragn-
heiður Ölafsdóttir í Glaumbæ kosin formaður félagsins og
aðrir í stjórn voru kosnir þau Sr. Ágúst Sigurðsson, Alda
Ellertsdóttir, Sigrún Halldórsdóttir og Guttormur Óskars-
son.
Á þessu tímabili hafa verið haldnir 5 stjórnarfundir og
efnt hefur verið til tveggja almennra funda, sem hafa verið
vel sóttir. Erfiðlega hefur gengið, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir, að fá miðla til að starfa fyrir félagið. En 8.
nóvember 1980 kom Einar Jónsson lækningamiðill á Ein-
arsstöðum á vegum félagsins og dvaldi í 4 daga á Sauð-
árkróki. Kom fram svo mikill áhugi félagsmanna að ná
fundi Einars að ekki komust allir að sem vildu. 1 júnímán-
uði sl. var Sálarrannsóknafélagið í Skagafirði svo heppið
að geta fengið Einar Jónsson aftur til starfa í nokkra daga
fyrir félagið.
Sálarrannsóknafélagið í Skagafirði vill hér með flytja
Einari hugheilar, hjartans þakkir fyrir komur sínar hingað
og fyrir sína kunnu alúð og hjartahlýju sem aldrei bregst.
I desember 1981,
Guttormur Óskarsson, ritari.
--------------------------------------------------------N
Athugið: Sálarransóknafélögin eru hvött til að
senda MORGNI stuttar fréttir af
starfsemi sinni.
Ritstjóri
j