Morgunn - 01.12.1981, Page 46
140
MORGUNN
Þ. Að lesa Nýalana eftir dr. H.P. sem eru sex talsins,
Nýall, Ennnýall, Framnýall, Viðnýall, Sannnýall og Þá-
nýall, ásamt tímaritinu ,,Lífgeislar“ og öðrum bókum sem
Félag Nýalssinna hefur gefið út. Einnig get ég gefið þér
takmarkaðar upplýsingar um þessa kenningu, ef þú vilt.
S. Hvaða afstöðu takið þið til annarra trúarflokka?
Þ. Fyrst vil ég afdráttarlaust fyrirbyggja þann misskiln-
ing, að Félag Nýalssinna sé trúarfélag, heldur er það þvert
á móti. Kenning þessi er uppbyggð á vísindalegum grunni.
Það skiptir því engu máli hvaða trúarbrögðum maðurinn
tilheyrir. Kenning þessi er ekki að rífa niður trúarbrögðin
sem slík, heldur að víkka út sjóndeildarhring þess, svo að
vitneskja komi í stað þess að trúa í blindni.
S. Hvernig getið þið verið svona vissir um að kenning-
in sé rétt?
Þ. Fyrst er að vita hvað draumur er. Er draumurinn
sambandsskynjun eða er hann eitthvað sem hugurinn býr
til? Þessari spurningu getur hver einstaklingur svarað ef
hann veit hvernig fara skal að. Þegar rannsaka á eitthvað,
verður athugarinn skilyrðislaust að vera sannsögull við
sjálfan sig, þar sem niðurstaðan getur kollvarpað fyrri
sannfæringu hans. (Það er sagt að vísindastéttin sé sann-
sögulasta stétt hér á jörðu). Með þetta að leiðarljósi hefj-
umst við handa og athugum hvort hugurinn geti framleitt
fullkomna mynd. Þú byrjar á því að framkvæma einhverja
hreyfingu, sest síðan niður og hugsar þér, að þú sért að
gera þessa sömu hreyfingu. Þá finnurðu að þú hefur ekki
glögga tilfinningu fyrir því, að þú sért að framkvæma þessa
hreyfingu, þegar þú aðeins hugsar þér það, heldur aðeins
mismunandi glögga endurminningu um hreyfinguna. Það
bendir til að heilinn hefur ekki hæfileika til að framkalla
í huganum fullkomna mynd og tilfinningu fyrir hugsaðri
hreyfingu eins og þú værir að framkvæma hana. En þegar
þig dreymir að þú sért að ganga, þá finnurðu að þú ert að
ganga. Allar tilfinningar þínar segja þér að fætur og hendur