Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 34
128
MORGUNN
björnsson. En hún gat þess, að Ólafur hefði aldrei átt
heima þarna; hann hefði átt heima á Bæ. En þessi Ólafur
Thorlacius átti heima á Bæ á Rauðasandi. Frú Þuríður
kannaðist við báða þessa menn. Hún var um tíma á Geirs-
eyri, frá 1909—1910, hjá Sigurði Magnússyni lækni, en á
þeim tíma er Hafsteinn miðill ekki fæddur. Frú Þuríður
þekkti þessa menn ekkert persónulega. En á þeim tíma
sem hún dvaldist þarna kom hún einu sinni að Rauðasandi
með Láru dóttur Sigurðar læknis. Að þetta var Jón Snæ-
björnsson var ekki hægt að efa vegna þess að Finna sagði
að hann væri Markússon líka. En Jón þessi var sonur
Markúsar Snæbjörnssen. En hann gekk undir nafninu Jón
Snæbjörnsson og var símstjóri á ^atreksfirði.
Þar næst fór hún að lýsa Vatnsdalnum og umhverfinu
þarna kringum þorpið. Hún lýsti því hvernig áin liðaði sig
inn dalinn og svo segir hún: „Þú átt ekki heima í Vatns-
dalnum, þú átt heima í hvítu húsi sem stendur á flatlend-
inu.“ Svo lýsti hún húsinu og hvar væri gengið inn og
sagði að fyrst væri gengið inn í skúr, og svo lýsti hún hús-
inu að innan og hvað væri þar inni. Að sögn Sigríðar var
allt rétt. Svo fór hún að tala um að þarna kæmi maður
sem héti Magnús Jónsson. Hún nefndi bæjarnafnið Sveins-
staði og sagði að þar væri brú skammt frá. Hún lýsti bæn-
um, þar sem hún sagði að væri steinhús með háum burst-
um fram á hlaðið, og kannaðist Þuríður við að lýsingin
væri rétt. Hún sagði að Sigurður, maður Þuríðar, þekkti
Magnús meira en i:ún og var það rétt. Þuríður er héðan að
sunnan en maður hennar úr Húnavatnssýslu, sömu sveit
og Magnús.
Svo lýsti Finna tengdaforeldrum frú Þuríðar og kallaði
hann háifpabba hennar. Jafnframt lýsti hún umhverfinu
þar sem þau hefðu búið, sagði að bærinn stæði undir háu
fjalli, í brekku. Hún lýsti útliti þeirra og klæðaburði og
kannaðist Þuríður við þau af lýsingunni. Hún var í fall-
pilsi með köflótta tvistsvuntu og hyrnu á herðum. Hárið
væri gráyrjótt. Hún nefndi nöfn þeirra beggja.