Morgunn


Morgunn - 01.12.1981, Page 34

Morgunn - 01.12.1981, Page 34
128 MORGUNN björnsson. En hún gat þess, að Ólafur hefði aldrei átt heima þarna; hann hefði átt heima á Bæ. En þessi Ólafur Thorlacius átti heima á Bæ á Rauðasandi. Frú Þuríður kannaðist við báða þessa menn. Hún var um tíma á Geirs- eyri, frá 1909—1910, hjá Sigurði Magnússyni lækni, en á þeim tíma er Hafsteinn miðill ekki fæddur. Frú Þuríður þekkti þessa menn ekkert persónulega. En á þeim tíma sem hún dvaldist þarna kom hún einu sinni að Rauðasandi með Láru dóttur Sigurðar læknis. Að þetta var Jón Snæ- björnsson var ekki hægt að efa vegna þess að Finna sagði að hann væri Markússon líka. En Jón þessi var sonur Markúsar Snæbjörnssen. En hann gekk undir nafninu Jón Snæbjörnsson og var símstjóri á ^atreksfirði. Þar næst fór hún að lýsa Vatnsdalnum og umhverfinu þarna kringum þorpið. Hún lýsti því hvernig áin liðaði sig inn dalinn og svo segir hún: „Þú átt ekki heima í Vatns- dalnum, þú átt heima í hvítu húsi sem stendur á flatlend- inu.“ Svo lýsti hún húsinu og hvar væri gengið inn og sagði að fyrst væri gengið inn í skúr, og svo lýsti hún hús- inu að innan og hvað væri þar inni. Að sögn Sigríðar var allt rétt. Svo fór hún að tala um að þarna kæmi maður sem héti Magnús Jónsson. Hún nefndi bæjarnafnið Sveins- staði og sagði að þar væri brú skammt frá. Hún lýsti bæn- um, þar sem hún sagði að væri steinhús með háum burst- um fram á hlaðið, og kannaðist Þuríður við að lýsingin væri rétt. Hún sagði að Sigurður, maður Þuríðar, þekkti Magnús meira en i:ún og var það rétt. Þuríður er héðan að sunnan en maður hennar úr Húnavatnssýslu, sömu sveit og Magnús. Svo lýsti Finna tengdaforeldrum frú Þuríðar og kallaði hann háifpabba hennar. Jafnframt lýsti hún umhverfinu þar sem þau hefðu búið, sagði að bærinn stæði undir háu fjalli, í brekku. Hún lýsti útliti þeirra og klæðaburði og kannaðist Þuríður við þau af lýsingunni. Hún var í fall- pilsi með köflótta tvistsvuntu og hyrnu á herðum. Hárið væri gráyrjótt. Hún nefndi nöfn þeirra beggja.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.