Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 49
SAMTALSÞÁTTUR UM ST.TARNTJFIÐ
143
samanburð má sjá hvað líkt er með vökudraumi og venju-
legum draumi. Þessar sýnir og venjulegir draumar gefa til-
efni til að álykta að mögulegt sé að sjá með augum annnars
manns. Ef þessi tilgáta er rétt, þá á sá maður, sem dreymir
að hann sé að horfa í spegil, ekki að sjá sitt andlit heldur
annað andlit, andlit draumgjafans. Nú vill svo skemmti-
lega til að mig hefur dreymt að ég væri að horfa í spegil.
Draumurinn er á þessa leið: Ég var að ganga inn á salerni
þar sem stór spegill var. Þegar ég leit í spegilinn, var ég
að furða mig á því hvað ég var ljóshærður og búlduleitur.
(Ég er dökkhærður og grannleitur). Síðan segi ég við sjálf-
an mig: „Er ég virkilega svona útlítandi“. Við þetta vakn-
aði ég.
Þessi draumur segir tvímælalaust, að ég sá ekki mitt
andlit heldur andlit annars manns, andlit draumgjafans.
Ég upplifði það sem hann var að upplifa á þessu augnabliki.
S. Það er vel hugsanlegt að þetta sé svona að einhverju
leyti. En mér finnst ekki allt falla vel inn í myndina. Eins
og til dæmis draumur þar, sem maður fer úr einum stað
í annan á örstuttum tíma.
Þ. Þarna gæti verið um draumgjafaskiptingu að ræða,
að sambandið slitni við fyrri draumgjafann og þú færð
samband við annan draumgjafa. Einnig getur verið um
að ræða missýnisdraum, þannig að þegar þú hefur tök á
að athuga aðstæður betur með augum draumgjafans, þá
sérðu að þetta er annað landsvæði en það sem þér fannst
vera í fyrstu og að öllum líkindum það sem þú taldir þig
þekkja. Þegar dreymandinn vaknar þá telur hann að land-
svæðið hafi breytt um svip. Mig hefur dreymt draum sem
er hvorttveggja missýnisdraumur og draumgjafadraumur.
Mig dreymdi, að ég væri í bifreið ásamt tveimur karl-
mönnum öðrum, (minnist ég ekki að hafa séð andlit þeirra
greinilega í draumnum). Það var bjart af degi og snjór
yfir öllu. Mér fannst við aka sem leið lá inn á Ráðhústorg
á Akureyri, síðan inn Hafnarstræti. Þá veitti ég því athygli