Morgunn


Morgunn - 01.12.1981, Page 49

Morgunn - 01.12.1981, Page 49
SAMTALSÞÁTTUR UM ST.TARNTJFIÐ 143 samanburð má sjá hvað líkt er með vökudraumi og venju- legum draumi. Þessar sýnir og venjulegir draumar gefa til- efni til að álykta að mögulegt sé að sjá með augum annnars manns. Ef þessi tilgáta er rétt, þá á sá maður, sem dreymir að hann sé að horfa í spegil, ekki að sjá sitt andlit heldur annað andlit, andlit draumgjafans. Nú vill svo skemmti- lega til að mig hefur dreymt að ég væri að horfa í spegil. Draumurinn er á þessa leið: Ég var að ganga inn á salerni þar sem stór spegill var. Þegar ég leit í spegilinn, var ég að furða mig á því hvað ég var ljóshærður og búlduleitur. (Ég er dökkhærður og grannleitur). Síðan segi ég við sjálf- an mig: „Er ég virkilega svona útlítandi“. Við þetta vakn- aði ég. Þessi draumur segir tvímælalaust, að ég sá ekki mitt andlit heldur andlit annars manns, andlit draumgjafans. Ég upplifði það sem hann var að upplifa á þessu augnabliki. S. Það er vel hugsanlegt að þetta sé svona að einhverju leyti. En mér finnst ekki allt falla vel inn í myndina. Eins og til dæmis draumur þar, sem maður fer úr einum stað í annan á örstuttum tíma. Þ. Þarna gæti verið um draumgjafaskiptingu að ræða, að sambandið slitni við fyrri draumgjafann og þú færð samband við annan draumgjafa. Einnig getur verið um að ræða missýnisdraum, þannig að þegar þú hefur tök á að athuga aðstæður betur með augum draumgjafans, þá sérðu að þetta er annað landsvæði en það sem þér fannst vera í fyrstu og að öllum líkindum það sem þú taldir þig þekkja. Þegar dreymandinn vaknar þá telur hann að land- svæðið hafi breytt um svip. Mig hefur dreymt draum sem er hvorttveggja missýnisdraumur og draumgjafadraumur. Mig dreymdi, að ég væri í bifreið ásamt tveimur karl- mönnum öðrum, (minnist ég ekki að hafa séð andlit þeirra greinilega í draumnum). Það var bjart af degi og snjór yfir öllu. Mér fannst við aka sem leið lá inn á Ráðhústorg á Akureyri, síðan inn Hafnarstræti. Þá veitti ég því athygli

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.