Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 27
ALÞJÓÐLEGT MOT SALARRANNSÓKNAMANNA
121
kona, Pat hét hún, sem átti 86 ára afmæli þennan dag,
sérlega ljúf manneskja, sem vann hug og hjörtu allra við-
staddra. Hún hafði misst manninn sinn í stríðinu, og hafði
upp frá því helgað sig kærleiksriku starfi til hjálpar öðrum.
Guðmundur hafði orð á þvi, að gaman væri að bjóða þess-
ari konu til Islands.
Mér datt i hug að velja nokkrar myndir frá ráðstefn-
unni, sem ég hef látið fara hér um salinn. Þær kynnu að
vera til frekari glöggvunar.
— Það er t.d. mynd af þátttakendum og íslenska hópnum
sérstaklega. Þá er mynd af stjórn samtakanna, en Guð-
mundur Einarsson, forseti SRFl, er í stjórn þeirra, og
nýtur auðsýnilega mikils álits, — rís eins og klettur úr
hafinu. Því má skjóta hér inn í, að Island virðist skipa
mjög virðulegan sess í heiminum á sviði dulsálarfræðinnar.
— Ein mynd er af Guðmundi Einarssyni og dr. Puharich,
en Guðmundur tók upp viðtal við Puharich, þar sem hann
segir frá mexíkönsku konunni Pacitu, sem hann á ef til
vill eftir að skrifa um, eins og hann gat um í fyrirlestri
sinum.
— Nokkrar myndir eru af RON WHITE, kanadískum
vei’kfræðingi, sem minnti mig svo sannarlega á Hafstein.
Oft er það svo, að þegar við erum fjarri heimkynnum, að
við þykjumst sjá þær persónur, sem hugur okkar er bund-
inn við, — en hér var ekki um að villast, að þessi kanadíski
maður minnti um margt á Hafstein.
— Þá er m.a. mynd frá síðasta kvöldinu á ráðstefnunni,
sem var sannkallað skemmtikvöld. Margir góðir söngvarar
komu fram, og íslenski hópurinn lét ekki sitt eftir liggja,
og söng rammíslensk lög við góðar undirtektir.
Eftir ráðstefnuna fóru flestir þátttakendurnir í vikudvöl
til Stanstead, sem er sveitasetur í eigu breska sálarrann-
sóknafélagsins. Við Islendingarnir áttum hinsvegar eftir
tvo daga, og tókum við bílaleigubíl til Alresford þar,
sem við gistum, skammt frá Winchester. Erindið var
að fara til Brookwood, sem er sveitasetur þar í grennd, og