Morgunn


Morgunn - 01.12.1981, Page 20

Morgunn - 01.12.1981, Page 20
114 MORGUNN arsson, forseti SRFl, sá um undirbúning ferðarinnar, og lét mig vita af henni. Ekki gerði ég mér miklar vonir fyrir- fram um sérstakan árangur, um fullvissu fyrir framhalds- lífi þurfti ég ekki, en ef til vill yrði ég einhvers vísari, og þá yrði ferðin ekki farin til einskis. Markmið alþjóðasamtakanna er m.a.: — að leiða í ljós hina andlegu hæfileika mannsins, sem eru í fullu samræmi við lögmál náttúrunnar. Starfið felst m.a. í því — að kynna markmiðið með fræðslu og útbreiðslu, út frá þekkingu, fenginni reynslu og vísindalegu sjónarmiði sálarrannsókna. Dagskráin var ákveðin áður fyrir alla daga vikunnar. Hún hófst ávallt fyrir hádegi með fyrirlestrum eða fræðslu og aftur að loknu matarhléi kl. 14. Þá var oft tekin fyrir félagsmáladagskrá. Á kvöldin voru fyrirlestrar, skyggni- lýsingar o.fl. Fólki var frjálst að sækja þá dagskrárliði, sem það vildi. Á dagskrárkynningunni gat að líta nöfn, sem margir kannast við hér heima. Vil ég geta þeirra helstu: EILEEN ISON, sem starfar með eiginmanni sínum, Róbert, og er góður skyggnilýsingarmiðill. Þau hafa kom- ið hingað til lands. QUEENIE NIXON, sem er „transmiðill" og hefur geng- ist undir háskólarannsóknir í sambandi við umbreytingar í andliti (trancefiguration). EILEEN ROBERTS, sem er formaður breska miðlasam- bandsins og, eins og segir í dagskrárkynningu, „kunn fyrir stórkostlega miðilshæfileika og einnig sem fyrirlesari og kennari“. Hún ferðast mikið um sem starfandi miðill m.a. til Bandaríkjanna, Kanada, Islands og víðar um Evrópu. ROBIN STEVENS, sem er eftirsóttur skyggnilýsinga- miðill og hefur einnig komið til Islands. Allir þessir miðlar komu fram með skyggnilýsingar, og eins gáfu sumir þeirra fólki kost á einkafundum.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.