Morgunn - 01.12.1981, Page 22
116
MORGUNN
Aíþjófríajví ráSstefnu sálmannsóknavtnanna
í &ujíandí —
22. ~2j. ágúst 1j)8l
1 öðru erindi, sem Puharich hélt síðar „The Significance
of the Paranormal“ eða „mikilvægi hins dulda, eða þess,
sem til hliðar er við hið þekkta“ kom Puharich jafnmikið
á óvart með hinum ótrúlegustu frásögnum, eins og t.d.
af mexíkanskri konu, PACITU, sem lést ekki alls fyrir
löngu, 81 árs að aldri. Persónulega fannst mér vanta mynd-
ir til frekari staðfestingar á lækningum Pacitu. Dr. Puhar-
ich kvaðst eiga fjöldann allan af kvikmyndum af Pacitu,
sem hann væri enn ekki búinn að koma röð og reglu á,
en væntanlega myndi hann síðar skrifa bók um hana.
Eitt kvöldið var á dagskrá svokallað ,,miðlakvöld“ (All
international mediums night). Þá voru þeir, sem voru með
einhverja miðilshæfileika kallaðir fram og beðnir að flytja
skyggnilýsingar til skiptis. Mér er minnisstæð fullorðin