Morgunn - 01.12.1981, Page 45
ÞORBJÖRN ÁSGEIRSSON:
SAMTALSÞÁTTUR UM STJARNLlFIÐ
S. Hvaða tilgangi þjónar Nýalskenningin?
Þ. Að yfirvinna helstefnuna og beina mannkyninu í líf-
stefnuátt.
S. Hvernig má það vera, að nýalsstefna geti leyst slík-
an vanda?
Þ. Það eru tvö öfl sem berjast um völdin: helstefnan,
sem leiðir til vítis, og lífstefnan, sem er vegurinn til ljóss-
ins og þekkingarinnar. Það hefur komið í ljós, eins og
flestir vita, að trúin hefur ekki staðið sig sem skyldi gegn
helstefnunni, vegna þess að eðli mannsins er viljinn til að
auka þekkingu sína en ekki að trúa í blindni. Eini rétti
farvegurinn er að leita á náðir viskunnar, sem kenning dr.
Helga Péturss byggist á, og er undirstaða á áframhaldandi
rannsóknum.
S. Hvernig í ósköpunum er mögulegt að halda þvílíku
fram og ætla sér síðan að standa á slíku? Þarna er greini-
lega um óskhyggju að ræða.
Þ. Það er vitað að dr. Helgi Pjeturss var merkur jarð-
fræðingur og viðurkenndur sem sérstaklega glöggur vís-
indamaður. Hvernig getur þá nokkur maður haldið því
fram með góðri samvisku, að þessi kenning hans sé i’öng,
án þess að hafa kynnt sér hana til hlítar?
S. Með hvaða hætti er best að fræðast um þessi mál-
efni?