Morgunn - 01.12.1981, Page 50
144
MORGUNN
að umferðin inn þá götu var stöðvuð. Það hefur orðið
umferðarslys segir einn af þeim sem var í bifreiðinni.
Siðan ökum við fram með bifreiðunum og fannst mér þá
við vera í sjúkrabifreið. Við staðnæmumst á slysstað. Við
þessa götu var húsaröð beggja megin. En skammt frá
slysstað endaði húsaröðin öðrumegin við götuna og mynd-
aðist stórt opið svæði og síðan byrjaði húsaröðin aftur.
Þarna á þessu opna svæði var verið að bera slasaðan mann
í burtu og lá hann á börum. Á þessum börum sat lítil stúlka
ofan á brjóstkassa slasaða mannsins, og grét hún lítilshátt-
ar. Datt mér þá helst í hug að þessi stúlka væri dóttir
slasaða mannsins. Ég sá að hann talaði við hana, sjálf-
sagt til að hughreysta hana. En skammt þarna frá var
blóðidrifið svæði i snjónum og blóðrák þar frá, eins og
einhver hefði verið borinn burt og misst mikið blóð. Þá
heyrði ég sagt fyrir utan bílinn að konan hefði dáið.
Síðan héldum við áfram, og vorum allt í einu komnir
niður á höfn. Þá kom bifreið af Dodge Vipon gerð, að mér
fannst, akandi framhjá okkur á mikilli ferð. Þá fyrst gerði
ég mér grein fyrir að það var mikil hálka úti, því Vipon-
inn rann skyndilega áfram og til hliðar. ökumaður hafði
greinilega hemlað. Fannst mér það vera af leikaraskap til
að geta snúið bifreiðinni á þann hátt. En við það að öku-
maður hemlaði, þá rann bifreiðin út á bryggjukantinn,
sem var úr tré. Hrapaði bifreiðin þá fram af með öku-
manninn.
En á því augnabliki sem hún var komin fram af, þá var
ég allt í einu kominn inn í þessa bifreið og sá út um fram-
gluggann grjóthnullunga og sjávarkambinn langt fyrir neð-
an. Aðeins örskamma stund var ég í hrapandi bifreiðinni,
því að óðar en varði var ég kominn á ný í fyrrnefndu
bifreiðina. Þaðan sá ég hvar hin bifreiðin steyptist niður í
sjóinn, á framendann. Fallið hefur verið nálægt 10—20
m. Síðan sá ég bifreiðina svífa niður, en engan mann sá
ég fara úr henni.
Skyndilega hljóp ég úr bifreið minni, þegar ég hafði