Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 79
RITST J ÓRARABB
173
Hornell Hart fjallar í bók sinni um ósjálfráð fyrirbæri,
miðilsfyrirbæri, svipi og ennfremur um heilann og sjálfs-
vitundina. Þótt skipulega sé farið í efnið og stundum
allfræðilega, er bókin skemmtileg aflestrar með mörgum
dæmum um reynslu manna í draumi og vöku. Mikil býsn
hlýtur maðurinn að hafa lesið, því að listinn yfir þær
greinar og bækur sem hann telur þess virði að nefna, er
hvorki meira né minna en 13 biaðsíður. Tilvitnanalisti
þessi væri hið nýtasta veganesti fyrir hvern þann sem
hyggðist leggjast djúpt í leit að svari við hinni miklu
spurningu um framhaldslíf.
V. Jólabækur
Meðal jólabóka ársins 1981 voru nokkrar bækur sem
skírskota ættu til lesenda Morguns og verða nokkrar
nefndar hér ásamt umsögnum bókaútgefanda, sem er
Skuggsjá. Bækur komu út eftir tvo fyrrverandi ritstjóra
Morguns og forystumenn Sálarrannsóknafélagsins, þá
Ævar R. Kvaran og Sr. Jón Auðuns.
Ævar R. Kvaran: „Undur ófreskra“. Safn dularfullra
furðusagna, sem allar eru hver annari ólíkari og ótrúlegri,
en eiga það sameiginlegt allar að vera vottfestar og sann-
ar. Enginn Islendingur hefur kynnt sér þessi mál jafn
ítarlega og Ævar R. Kvaran.
Jón Auðuns: „Til hærri heima“. Þessi fagra bók geymir
úrval úr sunnudagshugvekjum séra Jóns, sem birtust á
sínum tíma í Morgunblaðinu. Alls eru hugvekjurnar 42 að
tölu. Það er mannbætandi að lesa þessar fögru hugvekjur
hins mikla fræðara og hugleiða í ró efni þeirra og niður-
stöður höfundarins.
Þá komu út minningabrot dr. Jakobs Jónssonar þar,
sem hann rekur feril hugsunar sinnar. Dr. Jakob samdi
fyrstur Islendinga fræðilega bók um sálarrannsóknir
(Framhaldslíf og nútímaþekking, 1934). I minningabók-