Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Blaðsíða 6

Morgunn - 01.12.1991, Blaðsíða 6
RITSTJÓRARABB MORGUNN En hver er hugsanleg ástæða þess að hin s.k. fyrir- bæramiðlun er aftur að verða svo áberandi innan spíritismans sem raun ber vitni í dag. í öllu þessu framboði, ég vil nánast segja öllum þessum „hrærigraut" af stefnum, kenningum og aðferðum sem til eru orðnar og eiga eftir að verða til í þeirri bylgju andlegra mála sem að ströndum hefur borið, er kannski einmitt orðin til sama nauðsynin og þá fyrir mannkyn að spíritism- inn, sem fyrst og fremst færir fólki sönnun fyrir lífi eftir dauðann með huggun og styrk í því sambandi og ábendingu um nauðsyn ábyrgðar í framkomu okkar og lífi, láti til sín taka með jafn áþreifanlegum hætti og hann gerði á upphafsárum sínum. Og athugið, það er ekki ákvörðun sem við er hér á jörð búum nú, höfum tekið eða munum taka, slíkt er ekki á okkar valdi. Við erum aðeins þjónar og verkfæri í þeirri miklu áætlun sem hrundið var af stað í Hydesville árið 1848. Mikið vatn er til sjávar runnið síðan þá og margt hefur breyst í þjóðfélögum heimsins. Frumherjarnir háðu marga hildi til framgangs málstaðnum og sjálfsagt hefur ekki alltaf blásið byrlega. En grundvöllurinn var traust- ur og á honum byggjum við enn í dag. Spíritisminn hefur svo sannarlega staðist tímans tönn, hvernig ætti líka annað að vera, svo raunverulegur og rökréttur sem boðskapur hans er. Margir eru þó þeir til sem afneita vilja með öllu því sem kallað hefur verið líf eftir dauðann, sambands- möguleikum við „látna" ættingja og vini, andlegum tengslum á milli fóks á reynsluferð þess hér á jörð og annars staðar, í þessu lífi og öðrum. Slíkir hafa og munu alltaf verða til, það getur m.a.s verið hluti af þeirra lífsferð og námi að afneita slíku. Aldrei munum við geta sannfært alla er hér á jörð dvelja um tilurð og raunveruleika þessara mála. Enda er vafasamt að slíkt væri endilega æskilegt. Þeir sem þörf hafa á og finna sig knúna til frekari fræðslu og leitar á þessum sviðum í bland við efnislega reynslu sína hafa öll tækifæri til 4 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.