Morgunn - 01.12.1991, Side 7
morgunn
RITSTJORARABB
þess, sú ósk þarf einungis að koma innan frá. Og það
er síður en svo fráleitt að þeir sem kannski mest afneita
spíritískum málum á meðan þeir dvelja í efninu geti
orðið einhverjir bestu bandamenn þeirra eftir að yfir
kemur og upp rennur fyrir þeim ljós. Og ekki þurfum
við spíritistar að hafa áhyggjur af því að allir menn,
hverju nafni sem þeir nefnast, komist ekki að því fyrr
eða síðar, hvað var rétt og hvað ekki í þessum efnum.
Að því kemur að sjálfsögðu hjá öllum.
Verkefnið er hinsvegar og engu að síður, að gera
öllum ljóst sem vita vilja, að líf er eftir þetta líf, að
aðskilnaðurinn er tímabundinn, að lífið á jörðinni er
skóli, oft á tíðum erfiður skóli, en líka oft léttur og
skemmtilegur, og sem mun síðar veita okkur uppskeru
eins og við sáum í daglegum kennslustundum hans.
Slík vitneskja og vissa, hvernig sem hún er fengin,
hlýtur að létta mörgum byrðina, því skilningur veitir
frelsi, óvissa og tilfinning um óréttlæti er þung byrði.
Stundum heyrir maður um nánast ótrúleg próf og
raunir sem fólk þarf að ganga í gegnum. Sum standa
stutt og önnur lengur. Margir sýna fádæma hetjuskap
og þrautseigju í andstreyminu, aðrir kannski minni eins
°g gengur. Og ekki eru það alltaf allir sem standast
raunina, því miður, sumir brotna, því ekki er öllum
gefið að vera sveigjanlegir eins og tréð sem svignar
undan snjóþunga vetrarins og streitist ekki á móti á
meðan hæst stendur, en réttir sig síðan af þegar vor-
sólin kemur með sinn kraft og yl, sem fjarlægir snjóinn
°g gefur styrk, hlýju og von um bjart sumar.
En þannig finnst mér stundum vera líkingin varðandi
starf og hlutverk spíritista, þessa heims og annars.
Hjá Sálarrannsóknafélagi íslands starfa nú 7 huglækn-
mgamiðlar (heilarar) sem bæði stunda hefðbundna
heilun og fjarheilun, auk miðla og annars fólks sem
starfar að fyribænum hjá félaginu. Ég vil líkja þessu
fólki og öllu öðru sem starfar á sama hátt, við vorsólina
sem gefur styrk og von um betri tíð.
5