Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Side 31

Morgunn - 01.12.1991, Side 31
morgunn Nýr heimur er að fæðast vilja bera kyndil miðilsstarfsins inn í næstu öld. Við verðum að skapa bestu aðstæður fyrir þróun og þroska andlegra krafta þeirra eftir vísindalegum og andlegum leiðum. Ef spíritisminn á að lifa af næstu öld þá verður það fyrir mikla hæfileika talsmanna og miöla okkar og þjónustu þeirra sem hafa tileinkað kirkjum okkar og félögum starfskrafta sína. I þessari stóru borg, Aberdeen, kusum við hjá S.N.U. að halda aðalfund okkar núna. Til einkennis þessu tækifæri þá vil ég slá í bjöllu og skora á alla spíritista að hrista burt rykið, fjarlægja köngulóarvefina og láta einskis ófreistað til þess að kenna hreinan spíritisma og sanna fyrir heiminum áframhald lífsins eftir dauðann. Sýnum heiminum að við erum lifandi og geislandi hreyfing, en ekki að fjara út. Eg hef oft hugsað um það hvort spíritistar hafi tilhneigingu til þess að hunsa ráðleggingar vina okkar fyrir handan þegar þeir eru að skipuleggja framtíð hreyfingarinnar. Hugmyndir fyrstu spíritistanna var opinberun andans en í dag hafa sum okkar tilhneigingu til þess að treysta ^lgjörlega á eigin kraft. Eg álít að það væri betra ef við ræddum vandamál okkar við þá sem áhuga hafa á hinum megin. Við ættum að fá ráð þeirra áður en við tökum ákvarðanir sem hafa áhrif á velferð félagsskapar okkar °g miðla. Við skulum minnast ódauðlegra orða sem mælt voru af Swedenborg, andlegum leiðbeinanda Andrew Jackson Davis, þegar hann birtist honuni í mars 1848: „Bróðir ! Hið mikla starf er hafið, lifandi reynsla er fædd". Logi nútíma spíritisma var tendraður að handan. Skin hans hefur fundið leið að hjörtum og sálum alls staðar ' heimi hér. Tökum ekki efnisorkuna fram yfir orku andans.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.