Morgunn - 01.12.1991, Page 12
LÍKAMNINGAR Á
NÝLEGUM MIÐILSFUNDI
Bandarískur spíritisti lýsti fyrir stuttu síðan mörgum
áhrifamiklum miðilsfundum þar sem hann sá fjöldan
allan af líkamningum birtast.
Yfirleitt voru þeir sveipaðir útfrymi en allir ólíkir
innbyrðis, sumir háir eða lágir, aðrir þybbnir eða
magrir. Á einum fundanna birtust um 20 áþreifanlegir
likamningar.
Frá þessu segir í nýjasta fréttabréfi NAS-félagsins í
Bretlandi og er Gene Wood þar til frásagnar. Hann er
frá Ohio í Bandaríkjunum og er nú 74 ára gamall.
„Ég, bróðir minn og systir erum af þriðju kynslóð
spíritista, en þær hófust með afa mínum og ömmu, um
miðjan áratuginn 1870-80.
Ég hélt að ég hefði séð það besta í miðilsskap á
lífsferli mínum þar til ég uppgötvaði fyrir 13 árum
síðan (1978) mann sem hefur svo stórkostlega hæfileika
að þegar ég segi frá aðeins fáum þeim atburðum sem
ég hef upplifað hjá honum þá kunna þeir að virðast
hreint óframkvæmanlegir, eins og mér fannst er ég tók
þátt í þeim. Ég gæti spurt sjálfan mig hvort þetta hafi
í raun verið að eiga sér stað eða að þetta hafi verið
ímyndanir hjá mér. Ef svo hefði verið þá hefðu a.m.k.
10 aðrar manneskjur sem viðstaddar voru líka verið að
ímynda sér þetta sama".
Állir fundirnir voru teknir upp á segulband og vitni
eru enn lifandi. Vegna slæmrar heilsu þá er viðkomandi
miðill hættur að halda fundi. Woods telur sig ekki geta
10