Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Side 26

Morgunn - 01.12.1991, Side 26
Opið hús - Jólafundur S.R.F.I. MORGUNN Þórunn Maggý tók til máls og flutti m.a. afar fallega og áhrifamikla bæn. Maggý gat þess að hún væri að koma vestan frá Isafirði þar sem hún hafði verið með skyggnilýsingar, væri hún þreytt og vafalaust alveg þurrausin, en samt sem áður langaði sig til að reyna hvort hún gæti komið með einhverjar skyggnilýsingar hér. bað að ég fer að rifja þetta upp hér er fyrst og fremst vegna þess að Maggý kom með skyggnilýsingar sem snertu mig, en komu mér í svo opna skjöldu að mér finnst ég skulda henni það að færa þær hér til leturs. Eins og vænta mátti komust strax sambönd á, til þeirra er ég taldi mig vita að væru næmir og reyndir í þessum efnum. Til þess að vera fullkomlega einlægur í þessari ritun minni þá viðurkenni ég það hér með, fyrir öllum sem þetta kunna að lesa, að ég var lítt með hugann við það sem fram fór. Ég taldi afar eðlilegt að vegna þreytu Maggýjar yrði hér um örstutta lýsingu að ræða, lýsingu sem í raun myndi byggjast upp á hæfni reyndra móttakenda. Já, þannig var nú það. Það kom því sem reiðarslag yfir mig er ég varð þess var að Maggý stóð skyndilega andspænis mér, þar sem ég sat aftarlega í salnum, og tók að spyrja mig ýmissa spurninga. Hún spurði m.a. um hvort ég kannaðist við bifreiðanúmerin R-173 eöa R-I74, eins og þau hefðu verið um 1945 - 1946 og þá á gömlum bifreiðum. Ég sagði Maggý, þegar ég haföi áttað mig á því að hún var að spyrja mig, að ég myndi kannast við bæði númerin. Til skýringar á þessu vil ég geta þess að á árunum 1942 - 50, umgekkst ég afar mikið ökumenn og bifreiðar þeirra vegna starfs míns og því þekkti ég geysimörg bifreiðanúmer. Maggý spurði mig mikið um nafnið Sigríður, en því miður kannaðist ég ekki við það. Þá kom nafnið Sveinbjörn, sem ég kannaöist strax við. 24

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.