Morgunn - 01.12.1991, Page 30
Nýr heimur er að fæðast
MORGUNN
verðmætamats fyrir áframhaldandi lífi, minninga og
kærleika. Hugur og vitund lifa áfram. Skilnaður við
fjölskyldu og vini er alltaf sorgleg reynsla. En fyrir þá
sem trúa því að dauðinn ræni þá ástvinum þeirra að
eilífu þá hlýtur það að vera hræðilegur atburður.
Miðilsstarf færir raunverulega huggun og gleði til
þeirra sorgmæddu. Miðilsstarfið bjargar mannslífum.
Slík huggun er aðeins einn hluti spíritismans. Stór-
kostlegasta blessun miðilsstarfsins er hið nýja líf og sú
útsýn sem það gefur yfir það.
Efnisleg verðmæti taka að víkja og verða minna
mikilvæg og andleg verðmæti sjást í sínu rétta sam-
hengi sem hinn eini viðvarandi og haldbæri kostur
lífsins.
Maðurinn er fyrst og fremst sál og andi, jarðneskt líf
hans er einungis áfangi á eilífri leið. Andlegur þroski
með þeirri gleði sem honum fylgir, bíður hans.
Allt sem hann bætir við andlegt eðli sitt eykur kraft
hans og gleði, sérhver andlegur sigur er skref áfram á
hinni eilífu vegferð sem færir mannsandann til hærri
vitundarsviða og lífs.
Gull, skartgripir, peningar eða eitthvert annað form
efnislegra hluta eru ekkert í samanburði við andlega
fjársjóði manns í andlegum krafti og verðmætum.
An miðilsstarfsins getum við ekki verið viss um þetta.
Allar trúar og launhelgibækur þessa heims hafa alltaf
byggt á þeirri grunnstaðreynd að annað líf væri að
loknu þessu. Öll uppbygging kristindómsins hvíldi á
birtingu Jesús eftir dauða hans á krossinum.
Ef Jesús hefði ekki haft samband við fjölskyldu sína,
vini og lærisveina eftir dauöa sinn þá hefði hann
gleymst og ekki væri nein kristin trú í heiminum í dag.
Miðilsstarfið er lífskraftur spíritismans því það færir
stöðuga og lifandi opinberun sannleikans um áfram-
haldandi líf og andlegt samband.
Sýnum því bæði eldri og núverandi miðlum tímabæra
virðingu okkar með því að búa í haginn fyrir þá sem
28