Morgunn - 01.12.1991, Blaðsíða 33
morgunn
Nýr heimur er að fæðast
öðrum er að hjálpa honum eins og frekast er unnt á
þroskaleið hans.
Andstæða þessa er þegar hann, í vægðarlausu eigin-
hagsmunaskyni, skyndilega er sprengdur yfir í annan
heim.
Heimurinn er að koma að krossgötum, og milljónir
vitna spíritismans gætu leikið stórt hlutverk í því að
leiða allar þjóðir til friðar.
Við skulum hafna stríðsaðferðum og eyðileggingu
efnishyggju mannanna og taka upp í staðinn trú á Guð
og kærleika til allra manna.
Ef allt fólk hér í heimi krefðist friðar þá kæmist hann
á, en jörðin er þreytt og berst fyrir lífi sínu.
Sál jarðarinnar er smám saman að deyja vegna skorts
á frelsi til vaxtar og aukningar á lífskrafti sínum í
gegnum lögmál náttúrunnar.
Efnishyggjan er að eyðileggja líf jarðarinnar, eitra
vatnið og drepa blómstur hennar.
Við þurfum að heyra kall jarðarinnar og heila sár
hennar svo eyðimerkur okkar fái blómgast og nái að
blómstra eins og rósin.
Trú á skaparann, trú á sjálfið og eilíft líf þess, trú á
bróður okkar og eilífð hans, ætti að slétta úr ófærum á
bfsleiðinni.
Kristna kirkjan getur ekki viðhaldið sterkri trú á
odauðleikann í hugsandi hugum. bað besta sem hún
getur gert er að ýta undir óljósa og óvissa von um
hann.
bað er hlutverk spíritismans að sanna mannkyni um
allan heim að dauðinn er ekki endir alls. Kenningar
spiritismans eru einstök blanda vísinda, kenninga og
trúar og felur í sér allt sem er satt í öllum kerfum.
Hugar trúarbragða heimsins mynda strending sem
brýtur upp hið hvíta ljós Guðs í geisla sértrúarsafnaða.
Og hver eining reynir í þrákelkni að fá okkur til þess
ab trúa því að þeirra geisli sé sá eini sem skipti máli.
31