Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Page 38

Morgunn - 01.12.1991, Page 38
Að telja andardrættina MORGUNN Það væri bara verst að ég skyldi ekki geta sungið með því." Verð ég að fyrirgefa honum það ? Jæja, vertu alvarleg. Reyndu heimspeki. Hvernig hljómar einnar handar klapp ? Einnar handar klapp ? Hvers vegna nota þeir það ? Hvað merkir það ? Það minnir mig á líffræði kennarann minn í menntaskóla, sem var vanur að spyrja þessarar heimskulegu spurn- ingar: „Ef að tré fellur út í skógi og það er enginn viðstaddur til þess að heyra það falla, myndar það þá hljóð ?" Ég gat aldrei fundið svarið við þessari heldur. En hann er sami kennarinn og er sagði að konan hefði aðeins eitt hlutverk í lífinu og það væri að eignast börn. Svo ég geri ráð fyrir að ég verði að fyrirgefa honum líka. En nú ætla ég að hugleiða af alvöru. Ég tel andar- drættina hjá mér. Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm, sex ..... Más ! Más ! Ég fæ of mikið loft. Hægðu bara á þér. Vertu róleg. Andaðu hægar, dýpra. Svona já. Einn tveir, einn tveir, hleypur Geir. Þrír fjórir, puttar stórir. Fimm sex, hvað er fimm sex ? Stingur ? Já, það er eitthvað hérna sem stingur. Fimm, sex ....... æ, gerðu þér bara eitthvað upp og haldu áfram. í hverjum er þetta garnagaul ? O, ó, það er í mér. Einbeittu þér að naflanum, svona já. Andaðu .............. einn. Ég er að einbeita mér að naflanum. Tveir ........... einbeita ..... þrír ...... Þeir segja að það séu til tvær tegundir af nöflum ....... þessir innföllnu og þeir sem standa út úr og að þú getir sagt til um persónuleika viðkomandi eftir því hvernig naflinn á honum er. Þegiðu. Vertu alvarleg. Ég og þessi stóll erum eitt, líka þetta herbergi og allt fólkið hér inni. Ég og alheim- urinn erum eitt og allt sem lifir. Ég og ....... hvað svo sem er að skríða niður aftanverðan hálsinn á mér. Hamingjan sanna. Hvað er þetta ? Ég verð að ná því. Skell ! Náði því. Suss .... suss ! Slaka. Lófana upp. Mig tekur að 36

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.