Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Page 71

Morgunn - 01.12.1991, Page 71
MORGUNN Leiðin til baka í ljósi framtíðarinnar sem okkur nær að skiljast að lögmálið um sáningu og uppskeru, orsök og afleiðingu - gildir um alla okkar tilveru - jafnt í stuttu jarðlífi okkar sem eilífðinni, þeim mun fyrr tengjumst við þroskalögmálinu, sem starfar óháð því hversu mikið við streitumst á móti því. En jafn lengi sem við ekki vinnum af gleði og með góðum vilja MEÐ því lögmáli, jafnmikið seinkum við þróun- inni. Á sama hátt virkar það góða í jákvæða átt og ef hver einstakur einstaklingur skildi þetta og lifði og fram- kvæmdi samkvæmt því, þá gæti mannkyn okkar horft öruggara til framtíðar, í stað þess að lifa í ótta eins og nú. Hvað okkur varðar sem kristin erum þá ættum við að sýna í gegnum allt sem lifandi er að Guð er til. Það er hvorki meira né minna en það sem Kristur biður okkur um. Jarðlífið er skóli sálarinnar, starfsþjálfun hennar á efnissviðinu og tilheyrir þeirri þróun sem á sér stað á ýmsum sviöum. Lífið er einungis form og okkur ber að skoða það í eilífðarsamhengi. Þegar manneskja byrjar í skóla þá er enginn sem heldur að hún eigi bara að læra fyrir skólann og þann tíma sem hún eyðir þar, hún lærir og lifir fyrir komandi líf að skóla loknum og hlakkar til hamingjusamlegs endis. Hvert jarðlíf er sem ein önn, við lok hennar förum við aftur heim í hús föður okkar, þar sem, samkvæmt orðum Jesús, eru margar vistarverur. Sérhvert okkar getur rólegt og í trausti hlakkað til þess að komast á nákvæmlega það svið sem passar okkur best í húsi föður okkar, þar sem þroski okkar heldur áfram með nýrri reynslu. Það ætti ekki að vera svo erfitt fyrir nútíma mann- eskju, svo vön sem hún er tunglferöum og öðrum tækniundrum, að reyna að aölaga reynslu sína á sama hátt hinu andlega sviði. Það er jú ekki við sem höfum fundið upp rafmagnið eða hljóðbylgjurnar, við höfum einungis notfært okkur þessi fyrirbæri, sem alltaf hafa 69

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.