Morgunn


Morgunn - 01.12.1991, Page 76

Morgunn - 01.12.1991, Page 76
Kærleikurinn sem frelsar MORGUNN bara svigna enn frekar í átt til jarðar. Svo að lokum, þá fjarlægði hún dag nokkurn stuðn- ingsprikið og sagði upphátt við tréð: „Ég hef gert allt sem ég get fyrir þig. Ég hef vökvað þig, beðið fyrir þér, en samt drúpirðu ennþá. Svo héðan í frá er þetta undir þér komið. Það verður þín ákvörðun. Annað hvort réttirðu úr þér eða ekki". Hún hafði ekki hugsað mikið um tréð í langan tíma, því hún hafði algjörlega sleppt af því hendinni. Og nú þegar hún horfði forviða á það, þá sá hún að það hafði myndað sterkan bol út úr þeim bogna. Hann var sterklegur og það geislaði af honum í sólskininu. „jæja”, hugsaði hún, „þetta er þá svarið". Þegar við fjarlægjum stoðprikin, losum takið, sleppum móðurumhyggju, hættum ofverndun, hættum að sár- bæna og reyna að breyta börnunum eftir okkar hug- myndum, þá munu þau rækta sinn eigin styrk og klæðast sinni eigin fegurð. Við verðum að gefa þeim frelsi til þess að vera þau sjálf. Frá þessu andartaki fann þessi móðir til friðar gagn- vart barni sínu. Reyndar fór hún með hann út í garðinn dag nokkurn og sagði honum frá uppgötvun sinni. Hún sagði: „Ég gef þér frelsi - og ætla að sjá hversu ágætur ungur maður þú munt verða !" Hann skildi hana og svaraði: „Takk, mamma". Þar með var ekki sagt að vandamálin væru úr sög- unni, margt var að fást við, en þetta skapaði styrk og var blíð áminning um að það væri til innri leiðsögn með hverju barni. Það er vefur andlegs þroska einstakl- ingsins sem þó liggur kannski ekki alltaf í augum uppi. Þróun er lögmál Guðs og við verðum að treysta því að það lögmál nái tilgangi sínum. Enginn getur fundið styrkinn, friöinn eða hamingjuna fyrir aðra. Dýrðleg nærvera möguleikanna er hið innra með okkur öllum og mun afhjúpa sig sjálf. Stærsta gjöfin sem við getum gefið börnum okkar er sú að elska þau 74

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.