Lindin - 01.01.1946, Qupperneq 9
LINDIN
7
„Ég hugsaði um, livernig ég ætti að skilja það,
það var erfitt i augum mínum,
unz ég kom í helgidóm Guðs o. s. frv.
heldur einnig í kirkju Jesú Krists, sem postulinn
nefnir stoð, stólpa og súlu og grundvöll sannleikans.
De Gaulle varð fyrir þeim áhrifum frá Gyðingnum,
Yehudi Menuhin, snillingnum, sem „fór töfraboga
fiðlunnar um hjörtu mannanna“, að honum fannst
hann vera í veglegu musteri Guðs. Meiri sælu, meiri
unaðar var ekki hægt að njóta, lengra verður ekki
komizt, sízt á heilögum jólum en að njóta ná-
vistar jólabarnsins í musteri föðurins. Yehudi
Menuhin, undraharnið varð einn af mestu fiðlu-
snillingum heimsins. Jesús Kristur, hinn undursam-
legi ráðgjafi, hinn voldugi Guð, er frelsari mann-
anna. Þess vegna höldum vér jól. Þetta er bæði dá-
samlegt og undursamlegt. Það er hvorttveggja stað-
reynd, að snillitöfrar fiðlusnillingsins snertu hjörtu
mannanna, svo að þeir eignuðust musterisgleðina
og kærleikstöfrar og fórnarlund Frelsarans færði
þeim gleði hhnnanna. Og hafi fiðlusnillingurinn
töfrað de Gaulle og miljónir manna, má geta nærri,
— má geta nærri, að „þjóðkór“ himinsins, engla-
söngurinn á Betlehemsvöllum hafi töfrað hirðana.
Annars er það athyglisvert, að „góði hirðirinn“ birtir
fyrst „hirðum“ komu sína i heiminn, en felur
„sjómönnum“ að birta fagnaðarerindið og grund-
valla kirkju sína. Er það til athugunar.
Fiðlusnillingurinn — undrabarnið — hreif hjörtu
áheyrenda sinna. Hinn undursamlegi ráðgjafi, Frels-
ari mannanna, færði veröldinni hjálpræði Guðs.
„Þér tilhiðjið það, sem þér þekkið ekki, vér tilbiðj-
um það, sem vér þekkjum, þvi að hjálpræðið kemur