Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 26
24
LIND IN
landi eða fyrir það á sjó, einkum þegar veður gerðust
válynd að vetri, eða annir niiklar að sumri. I Otra-
dal var aðeins einn bær, samnefndur dalnum, og var
það prestssetrið. Varð kirkjufólk frá Bíldudal að
sjálfsögðu að fara að heiman og heim samdægurs,
það, sem ekki gat gist staðinn.
2. Það mun liafa þótt óheppileg ráðstöfun að hafa
aðalkirkjuna á stað, sem svo var fámennur, fremur
en á Bíldudal, þar sem fjölmennara var. Á Bíldudal
hefir verið verzlunarstaður a. m. k. frá því á 17. öld
og því allmargt íbúa, þótt hús væru þar fá. Þegar
kom fram á 19. öld,fluttu til Bildudals atkvæðamiklir
framtaksmenn, sem hófu þar verzlun og útgerð. Og
er kom fram um 1890, kom þangað Pétur J. Thor-
steinsson, sem gerði „garðinn frægan“ með þilskipa-
útgerð sinni og öðrum mikilvægnm fyrirtækjum.
Fluttist þá fólk ört til Bildudals og byggð jókst mjög.
3. Ekki hvað síst mun það hafa haft áhrif á kirkju-
byggingu á Bildudal, að Otradalspresti mun oft hafa
þótt þunnskipað á hekki kirkju sinnar, en séð ástæð-
una fyrir þeirri fæð og hvatt til úrhóta.
Árið 1902 voru raddir orðnar háværar um að
kirkja yrði reist á Bíldudal og yrði hún aðalkirkja
prestakallsins. Á þvi ári var kallaður saman almenn-
ur safnaðarfundur og einróma samþykkt að þessi
hreyting skyldi gerð.
Á árinu 1903 var svo biskupi ritað og samþykkis
leitað fyrir þessari breytingu.
18. júlí 1904 fékkst svo leyfi stj órnarráðsins til
þessa.
Veturinn 1904—1905 var svo farið að flytja grjót
að þeim stað, er kirkjan skyldi standa á. Hafði Pét-