Lindin - 01.01.1946, Blaðsíða 68
66
LINDIN
og stuðnings alls saí'naðarins, að sem allra flestir
taki af alhug virkan þátt í starfsemi hans, leggi
þannig sinn skerf til þess að fegra og fullkomna
lnnar kirkjulegu athafnir, um leið og þeir með iðkun
söngsins þroska sína eigin andlegu menningu. — Og
ég bið guð að gefa það, að þetta hús megi jafnan
vera öllum söfnuðinum kærkominn samastaður til
stundarhvíldar frá hversdagsstriti og áhyggjum og
til andlegra tengsla og sameiginlegrar íhugunar um
hin alvarlegu hlutverk mannsandans og þau fyrir-
lieit, sem honum eru gefin. — Og síðast en ekki sízt
— til bænar og lofgjörðar, „syngjandi drottni nýj-
an söng“.
Kristinn Guðlaugsson.
Eigi skaltu þykjast hygginn; heldur óttastu Drott-
inn. og forðastu hið illa!
Það mun verða líkama þínum heilsubót, og mergur
(endurnæring) þínum heinum.
Heiðra Drottinn með þinum auðæfum, með frum-
vexti alls þíns gróða.
Þá munu hlöður þínar verða yfirfljótanlega full-
ar, og vínberjalögur flóa út af þínum vínpressum.
Minn son! litilsvirtu ekki Drottins aga, og vertu
ekki óþolinmóður, þegar hann hirtir.
Því livern, sem Drottinn elskar, þann agar hann,
og héfir á honum velþóknan, sem faðir á syni.