Dropar - 01.01.1927, Side 31

Dropar - 01.01.1927, Side 31
og hún hann, hann, sem var sjálfum sjer nógur og þurfti hennar auðvitað ekki. En svo var hann nú kominn um óraveg til að giftast henni, og lienni fanst allur gróður visna og fuglarnir glöðu farnir, eitthvað kalt og ófrjótt, hvert sem litið var, og hræði- lega óálitlegur vegurinn framundan. Annað hvort vrði þetta dautl líf, visið og tómt, eða einhver ill ósköp. En þó lokkaði óvissan hana, forvitnin um þessa tveggja manna samtvinning, og ástin og traustið var ófáanlegt til að kal'na í kvíða, en byrgði sig nið- ur undir og kúrði sig þar. — „Kannske það verði ekki eintómur sársauki“, sagði vonin. — „Illa líst mjer á það“, andvarpaði þekkingin, meðan hún var að búast brúðarklæðunum. Og svo gekk hún síðustu sporin sín óháð upp að altarinu, sagði „já“, og nú var alt klappað og klárt. Hún vissi, að þau voru talin hjón, en hún fann ekk- ert svipað því, að þau tvö hefðu orðið að einu. Mað- urinn, sem hún þráði, var langt, langt í burtu enn- þá, og hún hjelt áfram að unna honum og öllum elskulegu eiginleikunum hans. En hann, þessi, sem gekk heim við hliðina á henni og hún átti að fara að hátta hjá? Það var ókunur maður og mjög ólíkur hinum, og ekkert náið samband á millum. Það var hræðilegt alt saman, en óumflýjanlegt vísl þó. Og ekki einu sinni hægt að tárast yfir þvi, til þess var henni of kalt, og svo var þetta lika brúðkaupskvöld hennar, h e i ð u r s d a g u r i n n , sem kallaður var í gamla daga. Þegjandi háttuðu þau, þegar heim kom, ein og af- siðis og kveiktu ekki Ijós. Hún vildi enga viðhöfn hafa, og hann Jjet svo vera. „Þetta er kollótt brúðkaupskvöld!“ kastaði hann fram, þurlega, þegar þau voru háttuð. 29

x

Dropar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dropar
https://timarit.is/publication/731

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.