Dropar - 01.01.1927, Side 37

Dropar - 01.01.1927, Side 37
hverfis mig lieyri jeg vængjaþyt. og íóukvak. Þ.að eru hópar að hefja sig til flugs. Jeg hefi truflað svefnfrið þeirra. Nú ætla þær að velja sjer annað næturból. Ef til vill hafa þær ætlað að leggja af stað í langferðina að morgni. — Ver'ið þið blessaðar, og þökk fyrir sumarið. Langt verður nú þangað til jeg heyri ykkur syngja vorsöngvana. Það koma margir dinnnir hriðardagar og ömurlegar óveðursnætur áður en loftið kveður við af dírrindí, þegar börnin koma lilaupandi með öndina í hálsinum og hrópa hástöfum: „Lóan er komin, lóan er komin. Nú er vorið komið“. Og all- ir gleðjast, yngri og eldri. „Er blessuð lóan komin? Nú fer að vora“. — Blessuð lóan. Þá berst að eyrnm mínum skerandi vein, svo níst- andi sárt. Það er ekki „kvíði“ og ekki „útþrá“. Það er neyðaróp rjett við fætur mína. Jeg beygi mig nið- ur og svipast um. Og nú sje jeg lóu, sem kúrir í götunni fram undan mjer. Hún lemur öðrum vængn- um og kveinar meðan vængjatak lagssystra hennar deyr út í fjarska. Blessuð litla lóa, livað amar að þjer? Því ertu dæmd til að sitja hjer ein, þegar hinar fljúga burt? Vildi enginn vaka hjá þjer þessa löngu nótt? Veit enginn, að þú situr hjer ein i sárum? Jeg lýt niður til að taka hana upp, en lnin berst áfram nokkur skref. Hún kemst ekki langt. Nú kúr- ir hún sig niður eins og áður. En hvað blessað hjartað hennar berst ákaft, þeg- ar jeg tek hana upp. Annar vængurinn lafir máttlaus niður. Hann er brotinn. Vængurinn, sem átti að bera hana móti sól og sumri. Hún reynir að berja hinum og slíta sig lausa. Jeg strýk brjóstið og reyni að friða 35

x

Dropar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dropar
https://timarit.is/publication/731

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.