Dropar - 01.01.1927, Page 73

Dropar - 01.01.1927, Page 73
— Má jeg ganga hvar seni jeg vil? spnrði kóngs- dóttir. — Hvar og hvert sem þii vilt, svaraði dvergurinn. — Vertn þá sæll á meðan, sagði hún og trítlaði af stað. Þarna var lækin1. Hvað henni fanst skrítið að sjá vatnið renna svona áfram milli mjúkra grasbakk- anna. Þarna var litil tjörn, en það var engin stein- stjett í kringum hana, heldur blóm og sef. A vatn- inu syntu tveir stórir fuglar með ungana sína. Þeg- ar luin kom nær þeim, flugu þeir allir upp, og hún sá á eftir þeim langt út i geiminn. — Hjer voru engir vegir. Alstaðar mátti ganga. Hvað blómin voru l'alleg og fjölskrúðug. Kóngsdóttirin laut niður og tíndi stórt og fallegt blátt blóm. Þarna var annað rautt, sem hún hafði aldrei sjeð fyr. Hún gekk á- fram og áfram. Altaf fann hún ný og ný blóm, og altaf sá hún eitthvað nýtt og fallegt. Alt í einu kom lnin auga á stóran hóp af hvítum kindum, sem dreifðu sjer um grænt engið. Nálægt þeim sat ung- ur ljóshærður piltur við læk og var að borða. Hjá honum lá svartur hundur og svaf. — Komdu sæll, sagði kóngsdóttir. — Komdu sæl, sagði smalinn og virti hana fvrir sjer. Kcinurðu langt að? — Já, mjög langt, svaraði hún. — Hefurðu verið á ferð alla nóttina? — Já. — Þá hlýturðu að vera svöng. Viltu ekki hvíla þig hérna og fá þér matarbita? — Þakka þjer fyrir, svaraði hún og settist við hlið hans, en um leið fjell hettan af höfði hennar. Gula hárið sást alt og líktist geislabaug í kringum andlit litlu kóngsdótturinnar. Smalinn leit á hana og 71

x

Dropar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dropar
https://timarit.is/publication/731

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.