Morgunblaðið - 01.12.2008, Page 25

Morgunblaðið - 01.12.2008, Page 25
Umræðan 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2008 ATBURÐIR síðustu vikna á Íslandi hafa eðlilega valdið miklu umróti í samfélaginu. Fólk veit varla sitt rjúkandi ráð og til að bæta gráu ofan á svart fær almenningur vægast sagt afar misjafnar upplýsingar um það ástand sem skapast hefur og framundan er. Hvað svo sem um íslensk stjórnvöld má segja er þó tvímælalaust hægt að fullyrða að þau hafa illi- lega brugðist í upphafi þeirrar kreppu sem nú er illu heilli hafin á Ís- landi og er að mestum hluta heimatilbúin. Stjórnvöld hafa sýnt ótrúleg- an hroka, logið að almenningi og gefið misvísandi yfirlýsingar á sama tíma og þau ættu að sýna ábyrgð og samstöðu með þjóðinni og grípa til aðgerða sem duga til að draga úr áhrifum kreppunnar. Hér ætla ég ekki að rekja þá raunasögu sem valdið hefur því ástandi sem nú blasir við. Raunar nægir aðeins að nefna örfá dæmi:  Ekki alls fyrir löngu leiddi Sjálfstæðisflokkurinn nýfrjálshyggjuna til vegs og virðingar á Íslandi. Þá hófst hér óheft og vægðarlaus mark- aðshyggja og hin illræmda einkavinavæðing. Bankarnir voru teknir af þjóðinni og gefnir útvöldum gæðingum og sama gilti um ýmis fyr- irtæki í eigu almennings í landinu svo sem Símann.  Íslensk stjórnvöld fóru ekkert eftir viðvörunarorðum þeirra sem höfðu þekkingu og kunnáttu til að sjá að íslenska „efnahagsundrið“ gæti ekki staðist til lengdar og hlyti að hrynja með ómældum fórn- arkostnaði. Allir þeir sem reyndu aftur og aftur að vara við voru flokkaðir sem nöldrarar og sagðir vera á móti framþróuninni.  Fjármálakerfi íslenska ríkisins var sett í hendur flokksgæðingum sem skorti kunnáttu og þekkingu til að stjórna. Þannig mætti áfram telja og sýna fram á hvernig gerðir íslenskra stjórnvalda hafa smám saman orðið til þess að skapa það ástand sem nú ríkir í landinu. Það að missa atvinnu sína, geta ekki staðið við fjárhagslegar skuldbindingar og missa húsnæði sitt er eitt það versta sem fyrir nokkurn mann getur komið. Það ástand skapar mörg alvarleg og jafnvel óyfirstíganleg vandamál. Því er í raun ekki að undra þótt fólk sé reitt um þessar mundir og enn reiðara verður fólk þegar stjórn- völd sýna tómlæti, hroka og lygar eins og nú hefur gerst. Við þær aðstæður sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni verður hver og einn að meta viðbrögð sín. Það getur enginn krafist þess að þessi eða hinn eigi bara að vera jákvæður og þá muni allt lagast. Eða hvað? Er kannski ein leið út úr vandanum sú að vera jákvæður og taka að fullu þátt í allsherjar endurreisn, rífa sig upp úr kreppunni og endurvinna orðstír Íslands sem um þessar mundir er nánast eng- inn? Já, auðvitað er það ein leiðin og örugglega sú sem borið getur árangur. En eigi hún að vera fær þarf að skapa skilyrði til þess að jákvæðni fái dafnað og geti borið ávöxt. Þar þarf að vanda til verka og þar þarf að stíga skynsamleg skref. Til þess að skapa jákvæð við- horf til endurreisnar þarf meðal annars að ganga út frá þessum grunnforsendum:  Að öllum nýfrjálshyggjuhugmyndum verði endanlega kastað fyrir róða. Þær hafa þegar skaðað íslenskan almenning nóg og meira en það.  Að eignir þjóðarinnar verði ekki miskunnarlaust gefnar útvöldum gæðingum sem nota þær til eigin hagnaðar en til skaða fyrir þjóðina. Að grunnstoðir samfélagsins, svo sem velferðarkerfið, verði efldar til öryggis og hagsbóta fyrir almenning og einkavinavæðing þeirra stoða komi þar hvergi við sögu.  Að heimili og atvinnulíf verði ekki gerð gjaldþrota í því ástandi sem nú ríkir.  Að boðað verði til kosninga svo þjóðin fái að fella sinn dóm um það sem gerst hefur og með hvaða hætti hún telur framtíðinni best borg- ið. Ég er þess fullviss að ef farið verður af stað með þessi og önnur áþekk og jákvæð markmið í farteskinu mun íslenska þjóðin á undra- skömmum tíma ná áttum og byggja réttlátara þjóðfélag en það sem nú er okkur flestum svo mikil byrði. Við getum Ragnar Óskarsson, kennari og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum. ÞAÐ sem ríkisstjórnin á að ein- beita sér að fram að jólum er að taka til eftir sig og bjarga því sem bjargað verður og koma upp neyð- aráætlun fyrir fjölskyldur og fyr- irtæki. Sameining ríkisstofnana, breyt- ing á stöðum og aðildarumsókn til Evrópusambandsins bíður næstu ríkisstjórnar. Eftir áramót ættu stjórn- málaflokkarnir að efna til próf- kjara og boða til kosninga í vor. Mín tillaga er sú að þeir sem hafa áhuga á að komast á þing sendi inn umsókn með upplýsingum um menntun og starfsferil til flokk- anna eða stofni nýjan flokk til að auðvelda okkur kjósendum að velja hæfasta fólkið í þetta skiptið. Þjóðin ætlar að kjósa í vor Elsa Jóhanna Ólafsdóttir, Hvera- fold 41, Reykjavík. VIÐ lestur skrifa sem birst hafa um nýtil- komna greiðslu- jöfnunarvísitölu vekur það nokkra furðu mína hversu litla athygli þessi vísitala hefur fengið. Þeir sem taka lán til íbúðakaupa taka þau jafnan vegna þess að íbúðarhúsnæði kostar meira en fólk almennt hefur af peningum í handraðanum og flestum er það ljóst að lán kosta peninga í formi vaxa og verðbóta. Vextir og verð- bætur mynda síðan saman þann fjármagnskostnað sem lántaki þarf að standa undir. Nú er það svo að verðbætur hafa hækkað óheyrilega mikið, svo mikið að fjöldi fólks á í erf- iðleikum með þær greiðslur sem til falla á hverjum gjalddaga. Greiðslujöfnun er því kærkomin leið fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með að láta enda ná saman og jafngildir í raun viðbótarláni í formi lánalengingar sem er nánast sama formið og er á verðtrygg- ingu lána. Í þessu tilviki þarf lán- taki ekki að greiða lántökugjald né stimpilgjald af þessari viðbót- arlántöku. Bent hefur verið á að greiðslujöfnun geti leitt til meiri kostnaðar í formi vaxta (fjár- magnskostnaðar) en hitt gleymist að þetta getur leitt til léttari greiðslubyrði sem um þessar mundir getur skipt meira máli fyrir greiðandann sem annars þarf hugsanlega að taka á sig háa vexti vegna yfirdráttar á bankareikningi sem er jafnvel verri kostur. Ég tel rétt að fólk sem er með fjárhag sinn í járnum á annað borð noti þessa leið til að tengja saman greiðslubyrði lána sinna og launakjör hverju sinni en horfi þá frekar til þess að greiða aukalega af lánum síðar ef fjárhagurinn vænkast. Einnig er rétt að benda á að hægt er segja sig frá greiðslujöfnun hvenær sem er og leggst þá uppsöfnuð jöfnun við höfuðstól lánsins og dreifist yfir það sem eftir er af lánstímanum. Ásbjörn S. Þorleifsson rekur bókhaldsþjónustu og fjármálaráðgjöf. Greiðslu- byrði lána og greiðslu - jöfnunar- vísitalan ENGUM blöðum er um það að fletta að yfir Ísland gengur nú miklu meira en fjármálahrun. Í kjölfarið fylgir efnahagskreppa sem enginn getur sagt fyrir hve djúptæk eða langæ muni verða. Með hvaða ráðum hún verði helst hamin og fjármálakerfi landsins reist úr rústum hefur verið rætt þindarlítið á opinber- um vettvangi síðustu vikurnar. Miklu minna hefur farið fyrir umræðu um það sem er líklega alvarlegasti fylgifiskur fjármála- og efnahags- kreppunnar en það er kreppa lýðræðisins í þessu landi. Traustið, sem er líftaug lýðræð- islegs skipulags, er augljóslega fokið út í veður og vind. Það hlýtur að teljast höfuðverkefni í íslenskum stjórnmálum næstu mánuði og ár að endurreisa það traust. Ein meginforsenda slíkr- ar endurreisnar hlýtur að vera að almenningur verði þess var að þeir, sem hann hefur falið gæslu fjár síns og hagsmuna, sæti ábyrgð gerða sinna. Þetta tekur vitaskuld fyrst og fremst til yfirstjórnenda „útrásarbankanna“ þriggja. Með neyðarlögunum var bankastjórum þeirra vikið til hliðar en um ábyrgðarhlut þeirra eða ann- arra yfirstjórnenda í hruninu mikla hefur ekki verið úrskurðað að öðru leyti. Væntingar almennings undanfarnar vikur hafa staðið til þess að yfirmenn opinberra fjár- mála- og eftirlitsstofnana segðu einfaldlega af sér en sómatilfinning þeirra sjálfra hefur a.m.k. ekki enn leitt til þess. Þeir sitja sem fastast, girða sig sumir af frá fréttamönnum og láta með hátterni sínu eins og ekkert sé eðlilegra en þeim verði falið að hafa eftirlit með endurreisn- arstarfinu. Þetta ástand hefur sært gróflega siðgæðisvitund almennings í landinu. Eins og í pottinn er búið krefst hann ítarlegr- ar rannsóknar óvilhallra og ótengdra aðila á ábyrgðarhlut fjármálastofnana, sem hann hafði falið ávöxtun sparifjár síns, opinberra stjórn- sýslustofnana og stjórnvalda. Meðan slík rann- sókn hefur ekki farið fram er tómt mál að tala um endurheimt trausts. Við felum ekki brennu- vörgunum að slökkva bálið! eins og nú er sagt. Mestu varðar þó hvernig unnt verður að end- urskapa það traust sem er forsenda þess að lýð- ræðisskipulag okkar geti starfað með eðlilegum hætti. Það varðar ekki svo mjög traust almenn- ings á einstökum stjórnmálaflokkum heldur um það sem kalla má eðlilega ábyrgðartilfinningu stjórnmálamanna. Ekki fer hjá því að krafa al- mennings um ábyrgð að þessu leyti beinist að- allega að þeim stjórnmálamönnum sem hafa undanfarinn hálfan annan áratug beitt sér fyrir einkavæðingu íslenskra fjármálastofnana og að því að móta þeim starfsumhverfi í anda ný- frjálshyggju og alþjóðavæðingar. Hér er augljóslega yfirgnæfandi ábyrgð- arhlutur forystumanna tveggja stjórn- málaflokka, þ.e. Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks, þótt Samfylkingin hafi einnig komið þar nokkuð við sögu. Lítum á nýlegt dæmi sem boðar ekkert gott að þessu leyti: Í Kastljósi má- nud. 17. nóv. sl. var Valgerður Sverrisdóttir, nýbakaður formaður Framsóknarflokksins, krafin af fréttamanni svars um ábyrgð hennar sem þáverandi viðskiptaráðherra á einkavæð- ingu bankanna. Valgerður vék sér undan en vísaði til þess að ákvarðanir um einkavæðingu hefðu verið teknar í takt við það sem gerðist með öðrum þjóðum á Evrópska efnahagssvæð- inu. Þetta dæmi minnir á að samfara aðild landsins að slíkum fjölþjóðlegum samtökum hefur krafan um ábyrgð stjórnmálamanna og upplýsingu almennings færst í öldungis nýtt samhengi. Á að líta svo á að slík aðild geri ís- lenskan ráðherra óábyrgan sem stefnumótanda í jafnþýðingarmiklu máli og einkavæðing bank- anna var á sínum tíma? Spurningar af þessum toga hafa fengið stór- aukið vægi í ljósi síðustu og verstu atburða. Það virðist nýtilkomið að íslenskir ráðamenn hafi vaknað til vitundar um hvers konar skuld- bindingar um ábyrgð ríkisins á innlánsreikn- ingum íslenskra banka kynnu að fylgja aðild Ís- lands að Evrópska efnahagssvæðinu – nefnilega þær sem íslensk stjórnvöld hafa nú skrifað upp á. Fyrst svo háttaði til um ráðamenn, hvað má þá ætla um upplýsingu og vitund almennings? Hvernig hugsa menn sér að unnt verði að af- marka pólitíska ábyrgð og gæða lýðræðið merkingu undir slíkum kringumstæðum? Þær sýnast til þess eins fallnar að ýta undir póltíska firringu, vanmáttarkennd og vonleysi. Þetta leiðir hugann að því hve andstæð von- inni um endurreisn pólitísks trausts og ábyrgð- ar sú stefna er sem Samfylkingin knýr nú fast á um, þ.e. að Ísland sæki hið fyrsta um aðild að Evrópusambandinu. Að mínum dómi er ófor- svaranlegt að ætla að taka jafnörlagaríka ákvörðun við núverandi aðstæður þegar við blasir eindregið vantraust almennings á ís- lenskum stjórnvöldum og stofnunum. Eða skyldi það vera uppbyggilegt fyrir tilfinningu þjóðarinnar fyrir eigin getu og reisn í framtíð- inni ef slík ákvörðun verður tekin þegar al- menningur er niðurbeygður og með lakari sjálfsvirðingu en dæmi munu finnast um í allri sögu lýðveldisins? Ábyrgð og traust í lýðræðiskreppu Loftur Guttormsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. GEGNUM aldirnar hafa skipst á góð og mögur ár. Nú eru framundan hugsanlega tvö til þrjú mögur ár hér á landi. Sjaldan höfum við haft betri aðstöðu en í dag þegar við tengjumst evrópska vinnumarkaðinum sem telur um 500 milljónir manna í 27 löndum. ESS-aðild okkar tryggir frjálsa för fólks til atvinnuþátttöku á þessum stóra markaði sem er í þriggja til fjögurra tíma fjar- lægð frá okkur. Heildarfjöldi vinnandi fólks innan ES er um 220 millj. og því má áætla lauslega að 25-30 milljón störf losni árlega þegar fólk lætur af störfum fyrir aldurs sakir eða þegar fólk skiptir um at- vinnu. Síðustu ár hefur erlent vinnuafl tekið þátt í uppbyggingunni hér á landi og nú gefst okkur tækifæri til að taka þátt í uppbyggingunni hjá öðrum þjóðum innan Evrópusambandsins og víðar. Það þykir ekki tiltökumál að sjómenn séu allt að fimm til sex vikur í veiðitúr til þess að draga björg í bú. Á sama hátt á það ekki að vera til- tökumál að ungt og vel menntað fólk af öllum starfsstéttum nýti tækifær- ið og sæki vinnu innan evrópska vinnumarkaðarins og víðar. Ekki er nauðsynlegt að flytja með fjölskylduna í þessu skyni. Héðan eru góðar flugferðir þannig að hægt er að fara héðan á sunnudagskvöldi eða mánudagsmorgni og koma heim í vikulokin og vera með fjölskyld- unni. Þetta er meiri samvera en sjómenn hafa löngum haft. Með þessu aflast tekjur til þess að framfleyta fjölskyldunni og greiða niður skuldir heimilisins. Miðað við núverandi gengi verða nær öll erlend störf hálaunastörf. Jafnrétti hefur verið til náms þannig að konur og karlar standa jafnt að vígi að geta sótt vinnu erlendis. Þess ber að geta að margir hafa haft þetta fyrirkomulag á und- anförnum árum án þess að það þyki í frásögur færandi. Haft hefur verið á orði að það væri einstaklega slæmt ef ungt fólk flytti af landi brott. Það versta sem getur gerst er að ungt fólk sitji heima atvinnulaust eða vinni á lækkuðum launum og með skertan vinnu- tíma því að þannig dregur smám saman allan mátt og dug úr þessu frá- bæra fólki. Atvinnuþátttaka erlendis skapar þekkingu og reynslu sem getur síðan nýst til þess að koma að nýjum málum til áframhaldandi uppbyggingar hér á landi og því til hagsbóta fyrir alla. Í öllum löndum eru margar ráðningarþjónustur sem eru stöðugt að leita eftir starfsfólki, einnig eru fjölmörg dagblöð þar sem eru sérstakir kálfar með atvinnuauglýsingum eins og við þekkjum hér á landi. Íslensk- ar ráðningarþjónustur eru einnig í tengslum við erlendar ráðningarþjón- ustur og geta því aðstoðað við að koma á tengslum auk þess sem Vinnu- málastofnun vinnur ötullega að því að miðla upplýsingum um tækifæri erlendis. Þjóðin þarf á gjaldeyri að halda og því er atvinnuþátttaka á öðru mynt- svæði besta framlagið til stuðnings samfélaginu til skamms tíma. Atvinnu verður ekki að fá hér á landi fyrir alla þá sem hafa verið í störfum sem verið er að leggja af. Breyting verður ekki á þessu fyrr en stöðugleiki kemst á í kjölfar fullrar þátttöku okkar innan Evrópusambandsins. Þeir sem telja sig ekki hafa tilskilda menntun til þess að sækja vinnu erlendis eiga að nota tækifærið og bæta við sig menntun sem nýst getur til framdráttar á sem stærstum markaði. Háskólinn á Bifröst, sem og aðr- ir skólar, býður fólki að hefja nám um áramótin til undirbúnings há- skólanámi og á öllum stigum háskólamenntunar. Mikilvægt er að hver og einn meti stöðu sína og leiti sér ráðgjafar um möguleg tækifæri því „þeir fiska sem róa“. Við erum á 500 milljón manna vinnumarkaði Reynir Kristinsson starfar sem deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.