Morgunblaðið - 01.12.2008, Page 35

Morgunblaðið - 01.12.2008, Page 35
Menning 35 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2008 Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS ■ Föstudagur 5. desember kl. 19:30 Víkingur og Bartók Hljómsveitarstjóri: Michal Dworzynski Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson Béla Bartók: Píanókonsert nr. 3 Ludwig Van Beethoven: Sinfónía nr. 8 Ludwig Van Beethoven: Leonóru-forleikur Einn dáðasti píanóleikari landsins, Víkingur Heiðar Ólafsson, leikur einleik með hljómsveitinni í píanókonsert sem hann lék til sigurs í einleikarakeppni við Julliard- tónlistarháskólann nýverið. ■ Laugardagur 20. desember kl. 14 og 17 Jólatónleikar Jólatónleikar Tónsprotans eru sívinsæl skemmtun og lykilatriði við að komast í jólaskapið hjá þeim fjölmörgu sem láta sig aldrei vanta. Þeir sem eiga frátekna miða á Vínartónleikana í janúar eru beðnir um að ganga frá greiðslu sem fyrst. RAUÐU sinfóníutónleikarnir á fimmtudag spönnuðu tímana þrenna. Vínarklassík með fyrstu Lundúnasinfóníu Haydns (af 12), nútíma með fiðlukonsert eftir Þor- kel Sigurbjörnsson frá 1978/81, og eftir hlé með heimsfrægri síðróm- antísku píanótjáningu Modests Mússorgskíjs frá 1874 á mynd- verkum Victors Hartmanns í ný- klassískri orkestrun Ravels frá 1924. M.ö.o. algengt afbrigði af hefðbundnustu tónleikadagskrám sinfóníuhljómsveita þar sem sam- tímaverk kom í stað kons- ertforleiks eða einleikskonserts. Fór sízt illa á því, enda harm- óneruðu ólíku verkin undravel saman þrátt fyrir tveggja alda yf- irferð. Það var fyrst með heildar- útgáfum geisladiskssniðsins upp úr 1980 að almennir hlustendur náðu utan um ótrúlegt ríkidæmi stóraf- kastamannsins Josephs Haydns. Því 104 hljómkviður hans (1758-95) taka sitt drjúga hillupláss í hljóð- riti. Vel á annan metra á 78 snún- inga lakkplötum, þriðjung þess á LP – en á CD aðeins rúmfang tveggja lítra mjólkurfernu! Og sá meðhöndlanleiki gerir gæfumuninn – að maður tali nú ekki um innblás- inn toppflutning krafta á við Austro-Hungarian Haydn Orc- hestra undir stjórn Adams Fisc- hers, sem ættu að hafa myndað tímahvörf í Haydn-túlkun á síðari árum. Alltjent hvarflaði að mér oftar en einu sinni í D-dúr sinfóníunni að Rumon Gamba hefði heyrt og með- tekið þá afburðaútgáfu. Annað væri líka undarlegt, svo vægt sé til orða tekið. Fischer og félagar laða flestum betur fram náðargáfu Ha- ydns til að koma á óvart í stóru og smáu, og meðferð Rumons og SÍ bar þess einnig merki – að við- bættri „Schwung“-tjábrigðahefð Vínarbúa á rúberuðum hend- ingamótum sem leyfir músíkinni að anda. Flest kom hér fram sem koma þurfti – skáldlegar and- stæður, kankvís húmor og undra- verður frumleiki sem Haydn virðist geta lumað á fram í hið óend- anlega. Þrátt fyrir nokkur hvatvís tempóvöl varð samt blessunarlega lítt vart við ofvirkt tímastressið sem stundum hefur bagað túlkun aðalstjórnanda SÍ, og spilendur fíluðu greinilega verkið í botn. Sif Tulinius aðstoðarkons- ertmeistari sá um einleik í Fylgj- um [18’], fiðlukonserti Þorkels sem hér var Íslandsfrumfluttur í endur- skoðuðu gerðinni frá 1981 (frum- gerðina frumflutti Paul Zukofsky með SÍ 1978). Þó að verkið kalli varla á virtúósa fingurbrjóta tókst Sif oft fallega upp, og verkið náði víða seiðandi flugi. M.a. með skör- uðum þráfrumum í ætt við flögr- andi vatnadísakös, og litríkri or- kestrun þar sem tveir celestustaðir leiddu jafnvel hug- ann að ryðbrunnri bremsuskál á upphöfnu astralplani. Vonandi mun konsertinn eftirleiðis rata í verkefnaval hérlendra fiðluleikara þar sem hann á heima. Um Myndir á sýningu þarf ekki að eyða mörgum orðum. Hugvit Rússans ber öll merki óumdeil- anlegs meistaraverks í víðfeðmri útleggingu hans á frjóum málara, og orkestrun Ravels hefur fyrir löngu borið af öðrum, enda klass- ískt námsefni í meðferð sinfón- íusveitar. Snörp en yfirveguð með- ferð hljómsveitarstjórans tryggði sömuleiðis hámarkstúlkun, enda hljómsveitin vandanum vaxin í öll- um hljóðfæradeildum. Sannarlega fullgild frammistaða fyrir fullkomið framtíðarhús – og verðugur hvati til fullgerðar þess. Frumlegt hugvit í heiðtærum litum Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Háskólabíó Haydn: Sinfónía nr. 93. Þorkell Sig- urbjörnsson: Fylgjur. Mússorgskíj: Mynd- ir á sýningu. Sif Tulinius fiðla; Sinfón- íuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Rumon Gamba. Fimmtudaginn 27. nóvember kl. 19.30. Sinfóníutónleikar bbbbn Morgunblaðið/Einar Falur Sif og Þorkell Sif tókst oft fallega upp, segir m.a. í dómi gagnrýnanda. SÝNING á verki hol- lensk/frönsku myndlist- arkonunnar Mathilde ter Heijne stendur nú yfir í sýningarrýminu 101 Projects að Hverf- isgötu 18 A. Verkið ber titilinn „Woman to Go“. Er það innsetning sem sam- anstendur af 180 mismunandi póstkortum á 10 póstkortastöndum. Kortin eru prentuð í fjölda eintaka og gefst gestum kostur á að taka kort með sér. Er þetta listaverk ter Heijne í sífelldri vinnslu og endur- skoðun. Á kortunum eru svarthvítar ljósmyndir af konum frá ólíkum heims- hornum og af ólíkum stéttum. Á hverju kortanna má lesa nafn konu, fæðingar- og dánardag og æviágrip; allt eru þetta kvenréttindakonur og miklar kjarnakonur er voru uppi um aldamótin 1900. Ekki eru bein tengsl milli myndar og texta, nema útlit kvennanna vísar oft til þjóð- ernisuppruna þeirrar sem textinn er um. Textarnir eiga þannig við um konur, sem voru sannanlega á lífi en ekki hafa endilega fundist mynd- ir af. Verkið er í senn sagt pólitískt og ljóðrænt. Ter Heijne vinnur með ýmsa miðla en er þekktust fyrir innsetningar og myndbandsverk, þar sem hún kemur sjálf fram auk þess að nota nákvæmar eftirmyndir af sjálfri sér í raunstærð úr vaxi og plast- efnum. Verk hennar hafa verið sýnd víða, til að mynda í Stedelijk Mu- seum í Amsterdam, PS1 í New York, Hamburger Bahnhof í Berlín og á Seoul- og Sjanghæ-tvíæringunum. 101 Projects var áður 101 Gallery. Birta Guðjónsdóttir er listrænn stjórnandi starfseminnar. efi@mbl.is Konur á póstkortum Woman to go Verk Mathilde Tel Heijne. Mathilde ter Heijne sýnir í 101 ProjectsEftir Jóhann Bjarna Kolbeinssonjbk@mbl.is „ÞETTA var allt unnið á þessu ári, allt ný verk,“ segir myndlistarmað- urinn Bjarni Þór Bjarnason um sýn- ingu sína sem stendur yfir í Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi. „Þetta er mest- allt olíumálverk, en svo nokkrar vatnslitamyndir líka. Þetta er með expressíonísku ívafi, en um leið fígúratívt og út í abstrakt. Svo eru olíumálverkin að mestu unnin með spaða þannig að það er svolítið gróf áferð á þeim. Þetta er svona í þeim stíl sem ég hef verið að vinna með að undanförnu.“ Alls eru um 50 verk á sýningunni, og því ljóst að Bjarni hefur afkastað miklu á árinu. „Ég er eiginlega bara í þessu, að mála. En svo vinn ég líka, er aðeins að kenna í grunnskólanum hérna á Akranesi,“ útskýrir hann. Bjarni hefur haldið fjölda einka- sýninga í gegnum tíðina. Hann stundaði nám í Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands og Myndlistaskóla Reykjavíkur á árunum 1975 til 1980. Þá nam hann í Engelsholm Kunst- hojskolen í Danmörku á árunum 2003 til 2004. Sýning Bjarna er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18, en hún stendur yfir til 7. desember. Í gamla hverfinu Eitt olíuverka Bjarna á sýningunni. Expressíonískt og abstrakt Bjarni Þór Bjarnason sýnir um 50 verk á Akranesi Bjarni Þór Bjarnason BLÚSKVÖLD Blúsfélags Reykja- víkur hafa verið haldin fyrsta mánudag í hverjum mánuði á Ró- senberg við Klapparstíginn í vetur, og kvöldið í kvöld er engin und- antekning þar á. Að þessu sinni koma fram Blúsmenn Andreu með sjálfa Andreu Gylfadóttur í broddi fylkingar, og hljómsveitin Devil’s Train. Veislustjórn er í höndum blúskóngs Íslands, Halldórs Braga- sonar. Tónleikarnir hefjast stund- víslega klukkan 21. Blúsmenn og Devil’s Train Morgunblaðið/hag Andrea Verður á Rósenberg í kvöld ásamt Blúsmönnum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.