Ársrit Stjörnufélagsins - 01.01.1929, Side 14
12
LAUSNIN ER TAKMARKIÐ
STJARNAN
skilningur er samgróinn huga yðar og Iijarta, eins og ilinurinn
blóminu, þá Iiafið þjer rjettan skilning á tilgangi lifsins.
Eitt lögmál er öllum gefið: Þjer skuluð öðlast lausn. Iivort
sem þeir dýrka að liætti Hindúa, skurðgoð í skuggsýnum liof-
um, eða dásamlegum, fornum musterum; eða þeir liafa um
hönd siðaatliafnir, eins og tíðkast um viða veröld, í viðhafnar-
klæðum, með revkelsi og klukknahljómi; eða þeir gerast dul-
fræðingar, sem þrá að öðlast samhand við liinn eilífa anda, sem
vakir vfir veröld vorri; eða þeir taka að safna auði með marg-
víslegum hætti — eitt lögmál er öllum gefið. Því að hver reynir
að sleppa frá þvi, sem heldur honum föstum, slcppa upp úr
hjólfari því, sem hann veltur i, — herst við að sleppa upp úr
því, eins og fanginn fugl að komast undir hert loft, og komast
að takmarkinu.
Ef þjer þráið ekki lausn vegna fegurðar liennar og dásam-
legu dýrðar, þá eruð þjer líkir skipi, sem mist hefir áttavita og
önnur tæki til þess að rata rjetta leið, það velkist stjórnlaust
fvrir hverjum vindblæ, liggur undir áföllum og lendir í öll-
um liöfnum öðrum en þeim, sem æskt var eftir. En jafnskjótt
og þjer hafið vakið með yður þessa þrá, þessa hrennandi ást á
lausn, þá finnið þjer og rjetta liöfn á hafi lífsins. Og jafnskjótt
og þjer hafið fundið þá höfn, komist þjer að raun um að þjer
verðið að hafna öllu, þjer verðið að hafna öllu, sem þjer hafið
unnað, guðum þeim, sem liafa hjálpað vður, því að lausn er öll-
um guðum æðri, ofar allri mannlegri fullkomnun. En þegar þjer
hafið náð þessari liöfn lausnar, þá leggið þjer ást á allan heim-
inn, því heimurinn leilar þeirrar lausnar, sem þjer hafið fundið.
Þjer þráið að leiðbeina öllum þessum fleyjum á liafi lifsins, og
visa þeim til liafnar þar sem unað og frið er að finna, ])ar sem
enginn er einmana. Ef til vill gerist þjer sannir lærisveinar, ást-
vinir allieims, sem gangið meðal mannanna, til þess að kenna
þeim að skilja lausn og öðlast lausn.
Jeg er lijer af þessari ástæðu, að jeg vil hjálpa yður, vekja
yður þessa þrá. Jeg er hjer aðeins sökum þess að jeg á þenn-
an kærleika, sem fær innblásið yður og vakið yður þrá eftir
höfn lausnarinnar, og meðan þjer hafið ekki öðlast þessa lausn,
eruð þjer líkir dýrum sem föst eru í gildru.
Hvað sem þjer gerið, hvað sem þjer hugsið, hvaða helgi-
siðakerfi sem þjer hafið um hönd, hverjar sem hugmyndir yðar
eru, alt þetta verður eins og net, sem þjer flækist í meira og
meira og hneppir yður í þrældóm. .Teg' er hjer aðeins til þess
að höggva af yður þessa fjötra, sem umlykja yður, svo að þjer
verðið frjálsir.
Þennan komandi mánuð bið jeg yður að hafa ávalt fyrir