Ársrit Stjörnufélagsins - 01.01.1929, Side 53

Ársrit Stjörnufélagsins - 01.01.1929, Side 53
STJARNAN 51 ERINDI FLUTT { LGNDON fundið uppsprettulind hamingjunnar. Hugur minn er ckki skemdur af óteljandi truarsetningum og erfðakenningum, held- ur er liann fús til að rannsaka alt, sem fyrir ber, af alúð og með skynsemi. Þetta eru fyrstu skilyrðin til skilnings á sannleikan- um. Fyrstu skilvrðin til þcss að leysa lífið frá þess þröngu tak- mörkunum, trúarjátningum, kreddum og kennisetningum. Atlnigum til dæmis hvað er að gerast i nýtísku málverkalist, húsagerðarlist og í öllu, sem hefir á sjer blæ hinna nýju hugsana og tilfinninga. Fyrir skönnnu var jeg staddur i París með vini mínum, sem er þektur nýtísku málari, og hann sýndi mjer eina af myndum sínum, — eina af þessum myndum utan við veru- leikann. — Fyrstu áhrifin voru ógeðfeld, en vinur minn sagði: „Dæmdu ekki, þú ert vanur sjerstakri gerð málverka, sem hafa viss lilutföll, sjerstakar hugmyndir og ákveðnar línur og liti o. s. frv. Jeg er að gera tilraun með mvndagerð, sem mjög fáir hafa reynt. Vera má að liún sje fjarstæða, en mig langar til að þú lítir á þetta með skynsemi og skilningi og hleypidómalaust. Ef þú gerir það, muntu skilja hvað jeg mála“. Og eftir stundar- korn fann jeg — þar sem áður virtust engin blutföll, lögun, litir eða línur, að þar var lögun, litir og línur. En fyrst í stað skildi jeg þetta ekki, af því að liugur minn var vanur vissum hug- myndum um lögun, liti og lilutföll. Þannig þarf hugur, sem er haldinn af bleypidómum, að fá sannleikann gegnum sjerstök form. Hindúinn heimtar Iiann gegnum sín trúarbragðaform; liinn kristni heimtar sannleikann gegnum sín trúarbrögð og sama er að segja um Buddhatrúar- manninn, Múhamedstrúarmanninn o. s. frv. En sannleikurinn kemur aldrei gegnum form eða gegnum nein ákveðin mót af mannahöndum ger, og til þess að skilja sannleikann, sem er líf- ið, verðið þjer að koma undirbúnir, óhlutdrægir og hleypidóma- lausir í liuga og lijarta. Þetta er fyrsta skilyrðið, ef þjer viljið skilja lifið — eins og jeg vil útskýra það fyrir yður, hvort sein þjer eruð kristinn, guðspekingur eða eitthvað annað og elskið viðhöfn trúarbragðanna og kerfi þeirra. I öðru lagi: til þess að skilja lífið, og þar með sannleikann, ættuð þjer að vera í uppreisnarhuga gegn öllum rótgrónum trú- arskoðunum, kreddum og játningum. Lítið á það, sem cr að gerast í heiminum. Hvar sem þjer farið er uppreisnarandi, — einkum meðal yngri kvnslóðanna, — gegn hinum rótgrónu sið- ferðishugmyndum. Þetta sprettur af óánægju með allskonar drottinvald, — og það er alveg rjettmætt, — því bugur og hjarta sem gerir sjer alt að góðu, er sem stöðupollur í kyrlátum skógi. Á slíkum pollum vex grænt slý, og engin skepna kemur þar til að svala þorsta sínum. Þar er kyrstaða, og' þannig er sá hugur,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ársrit Stjörnufélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Stjörnufélagsins
https://timarit.is/publication/736

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.