Ársrit Stjörnufélagsins - 01.01.1929, Qupperneq 106
104
MARKMIÐ STJÖRNUF.IELAGSINS
STJARNAN
til einskis. Jeg segi yður, að jeg á það, sem getur læknað öll
mein; þegar þjer skiljið þann sannleika, sem jeg liefi að flytja,
þá munuð þjer losna af hjóli sorganna og sárin læknast í ímg-
um vðar og hjörtum. En ef þjer eigið að skilja mig fyllilega,
þá megið þjer ekki revna að laga það sem jeg segi, eftir yðar
gamla skilningi á sannleikanum. Jeg er að tala um krónu trjes-
ins, en ekki um grængresið á grundinni, því megið þjer aldrei
gleyma.
Ætlið ekki að lif, frelsi og fullsæla verði tvinnað saman
við eða lagi sig eftir yðar gömlu hugmyndum. Að þjer fallist
ekki á skoðanir mínar, skiftir mig engu. Að þjer sjeuð mjer
algerlega ósamþykk er ágætt, því að það neyðir yður til að
hugsa og þá farið þjer ef til vill að reyna að skilja mitt sjónar-
mið. En ef þjer segið aðeins liugsunarlaust: „Jeg er yður sam-
mála“, — og reynið síðan að láta orð mín samþýðast yðar
gömlu skoðunum — þá munu nýju hugmyndirnar verða vður
til falls.
Sá sannleikur, sem jeg hefi að flytja er svo mikill gleði-
hoðskapur, að lionum ætti ekki að liafna, en hann er jafnframt
svo þýðingarmikill, að við honum má ekki taka hugsunarlaust.
Ef þjer hefðuð rjettan skilning á því, sem um er að vera, þá
munduð þjer koma með þeirri ætlun, að reyna að klifa þær
Iiæðir, þar sem sannleikurinn býr, en þjer munduð ekki reyna
að draga liann niður til yðar.
Fullan skilning öðlist þjer ekki, fyr en þjer hafið sjálfir
klifið hæðirnar eilífu.
Nú skulum vjer tala um Stjörnufjelagið og markmið þess.
Bæði hjer og annarstaðar hafa ýmsir stungið upp á því við mig,
að uppleysa Stjörnufjelagið. „Slíkt fjelag“, segja þeir, „er ekki
nauðsynlegt“. .Teg Iiefi hlustað á þessar uppástungur, og jeg
hefi reynt að gera mjer grein fyrir, af liverju þær væru sprottn-
ar. Af því að þessir menn hafa sjeð fjelög verða að drottin-
valdi og ráðríka einstaklinga leggja þau undir sig, vilja þeir
láta Stjörnufjelagið hverfa úr sögunni. Stjörnufjelagið á að
verða hinum nýju hugmyndum brú yfir til mannkynsins, en má
ekki gera kröfu til að vera ímynd þessara hugmynda. Þeir sem
hafa sjeð glampa af sannleikanum geta flutt skilning sinn á
honum eftir þessari brú og til mannkynsins. Frá þessu sjónar-
miði er Stjörnufjelagið gagnlegt, en ef fjelagsmenn gera það
sjálft að takmarki, þá á það að deyja.
Ekkert fjelag geymir sannleikann. Til þess að finna sann-
leikann, er heldur ekki nauðsynlegt að vera í neinu fjelagi. Vjer
megum ekki gera Stjörnufjelagið að steinrunninni stofnun. Ef
þjer segið við mannkynið: „Þjer verðið að ganga í Stjörnu-