Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 RAFMAGNSLEYSI setti svip sinn á áramótagleði Skagfirðinga á gaml- ársdag. Rafmagnslaust varð á Sauð- árkróki rétt fyrir klukkan sex þegar verið var að leggja lokahönd á ára- mótasteikina á flestum heimilum í bænum. Allur bærinn var rafmagnslaus í tæplega 20 mínútur en ákveðnir hlutar bæjarins í tvo til þrjá klukku- tíma. Margir brugðu á það ráð að klára steikina á gasgrillinu áður en hún var borin fram. „Það voru vita- skuld góð ráð dýr svona á síðustu stundu,“ segir Margeir Friðriksson, íbúi í Malgerði 15 á Sauðárkróki, en þar var rafmagnslaust fram eftir kvöldi. Matreiðslan á steikinni, og helsta meðlæti sem krafðist hitunar, var kláruð á grillinu. „Þetta kom svona niður á okkar hverfi og það þurfti að bregðast við því. Það voru margir sem gripu til þess að nota grillin og við vorum þar á meðal. Matreiðslan gekk ljómandi vel. Við kláruðum kartöflur og sósu á grill- inu. Þetta setti skemmtilegan svip þá kvöldið. Rafmagnið komst svo aftur á skömmu fyrir Áramóta- skaupið.“ Orsök rafmagnsleysisins var sú að spennir hafði brunnið yfir en starfs- menn RARIK brugðust skjótt við og tryggðu Sauðkrækingum fulla lýs- ingu inn í nýja árið. magnush@mbl.is Morgunblaðið/Margeir Eldað Maríanna Margeirsdóttir og Sigurlaug H. Valgarðsdóttir leggja lokahönd á áramótamatinn. Kláraði steikina á grillinu Rafmagnsleysi á versta tíma INGIBJÖRG Sólrún Gísladótt- ir, utanrík- isráðherra og heiðursfélagi Friðarráðs pal- estínskra og ísr- aelskra kvenna, hvetur almenn- ing, ríkisstjórnir, alþjóðastofnanir, fjölmiðla, al- þjóðlega verkalýðshreyfingu og aðra til að gefa gaum yfirlýsingu Frið- arráðsins um hernaðaraðgerðir Ísr- aela á Gaza-svæðinu. Í fréttatilkynn- ingu segir að Ingibjörg Sólrún taki undir kröfuna um að árásum Ísr- aelshers verði þegar í stað hætt og að friðarviðræður verði hafnar að nýju þegar í stað með þátttöku Frið- arráðsins. Tveir fulltrúar Friðarráðsins, frá Ísrael og Palestínu, komu til Íslands í febrúar sl. til að kynna stefnu ráðs- ins. Styður kröfu Friðarráðsins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir KRISTJÁN Ara- son, eiginmaður Þorgerðar Katr- ínar Gunn- arsdóttur mennta- málaráðherra, til- kynnti samstarfs- mönnum sínum í Nýja Kaupþingi í gær að hann væri hættur störfum. Kristján starfaði sem framkvæmdastjóri viðskipta- bankasviðs bankans. Finnur Svein- björnsson, forstjóri Nýja Kaup- þings, sagði í samtali við mbl.is í gær að hann Kristján hefði átt frum- kvæði að ákvörðun sinni sjálfur. „Hann taldi að með þessu myndi hann leggja sitt af mörkum til að þess að skapa ró og frið um framtíð bankans. Ég met það mikils,“ sagði Finnur. Kristján er fjórði framkvæmda- stjóri nýja bankans, sem starfaði áð- ur hjá gamla bankanum sem lætur af störfum á skömmum tíma. Þá hættu einnig tveir starfsmenn sem annast höfðu umsjón með sam- skiptum við fjölmiðla og fjárfesta, þeir Jónas Sigurgeirsson og Bene- dikt Sigurðsson. Kristján Arason hættir Kristján Arason Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is „EKKI mjög frumlegar“ og bera vott um „óðagot eða taugaveiklun í herbúðum sjálfstæðismanna“ er meðal þess sem forystumenn stjórn- arandstöðunnar segja um hugmynd- ir Geirs H. Haarde um að kosið verði fljótlega um hvort farið skuli út í við- ræður um aðild Íslands að Evrópu- sambandinu. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, samráðherra hans, segir hins vegar eðlilegt að þá fari fram alþing- iskosningar samhliða. Ingibjörg Sólrún segist almennt telja að kostirnir verði að vera mjög skýrir þegar mál eru lögð í þjóðarat- kvæði. „Ég óttast að það skorti upp á það þegar þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um að fara í viðræður. Að þá verði gert út á annars vegar óraun- hæfar væntingar og kannski for- dóma hins vegar. Ég hef því vissar áhyggjur af því að fara þessa leið.“ Verði hún engu að síður ofan á segir hún sterk rök hníga að því að kosið yrði til Alþingis samhliða. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, segir að flokkur- inn hafi ekki tekið endanlega afstöðu til þess hvort rétt sé að hafa tvöfalda kosningu um aðild og aðildarviðræð- ur að ESB. „Það sem mér leist ekki vel á í ræðu Geirs voru hugmyndir hans um að rjúka í þetta á einhverj- um vikum. Ég átta mig satt best að segja ekki á því hvers konar óðagot eða taugaveiklun er í herbúðum sjálfstæðismanna því þetta eru svo stór og afdrifarík mál að menn hljóta að ætla að gefa eðlilegan tíma fyrir umræður og skoðanaskipti áður en farið er að kjósa um þessa hluti.“ Hann segir oft hafa verið rætt með hvaða hætti væri lýðræðislegast að standa að þessu máli. „Okkar meg- inafstaða er sú að fyrstu kosningar á Íslandi eigi að vera alþingiskosning- ar og það fyrr en seinna.“ Millileiknum sleppt Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir tillögu Geirs ekki nýja af nálinni. „Sjálf- stæðismenn hafa verið ótrúlega tregir til að taka þessi mál til umfjöll- unar en þetta er ákveðið skref og það er ástæða til að fagna því.“ Hún segir miðstjórn Framsóknarflokksins hafa ályktað á þessa veru í fyrravor og lagt fram tillögu á Alþingi sem ekki hafi fengist rædd. „Þetta eru því ekki mjög frumlegar hugmyndir. Hins vegar hafa hlutirnir gerst hratt í þjóðfélaginu síðan og á miðstjórnar- fundinum í nóvember var ákveðið að flýta flokksþingi okkar þar sem um- fjöllunarefnið yrði hvort Ísland eigi að ganga til aðildarviðræðna við Evr- ópusambandið án þess að fara í þennan millileik.“ Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist sam- mála því að borið verði undir þjóðina hvort fara eigi út í aðildarviðræður, enda sé slíkt í samræmi við stefnu Frjálslynda flokksins um íbúalýð- ræði. „Ef meirihluti hennar segir já þarf að skilgreina þau markmið sem hafa á í slíkum viðræðum.“ Hann bætir því við að meðan fiskveiði- stjórnunarkerfið haldist óbreytt sé Frjálslyndi flokkurinn andvígur að- ild að ESB. Setja þurfi ákvæði í stjórnarskrá hvað teljist auðlindir þjóðar áður en farið er út í viðræður um aðild að ESB. Ólík viðbrögð formannanna  Ingibjörg: Alþingiskosningar yrðu samhliða  Steingrímur: Óðagot og taugaveiklun sjálfstæðis- manna  Valgerður: Flokkurinn fallinn frá hugmyndinni  Guðjón: Samþykkur þjóðaratkvæði Steingrímur J. Sigfússon Valgerður Sverrisdóttir Guðjón A. Kristjánsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Geir sagði í áramóta- grein sinni sjálfgefið að þjóðin kysi um hugs- anlega aðild að ESB. „En vegna alvöru og mik- ilvægis máls- ins tel ég einnig koma til greina að ríkisstjórnin fái, ef til þess kemur, skýrt umboð fyrirfram í þjóðaratkvæða- greiðslu til að ganga til aðild- arviðræðna við ESB. Eðlilegt væri að setja sérstök lög um slíka atkvæðagreiðslu strax í febrúar og ganga til þjóð- aratkvæðis nokkrum vikum síðar að lokinni eðlilegri kynn- ingu á málinu.“ Lög sett í febrúar Geir H. Haarde Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is ÁRIÐ sem nú er að líða verður Anítu Briem eflaust minn- issstætt fyrir flest annað en efna- hagshrunið á Íslandi. Þetta er árið sem hún skaust upp á stjörnuhimininn sem aldrei fyrr með sinni fyrstu Hollywood- kvikmynd, ævintýramyndinni Journey to the Center of the Earth. Í kjölfarið standa henni nú án efa opin ný tækifæri sem hugsanlega voru ekki fyrirséð fyrir ári. „Mér finnst þetta ár hafa liðið á augnabliki, mjög stór partur af einbeitingu minni fór í að fylgja eftir þessu stóra skrefi í frama mínum og lífi,“ segir Aníta. Að- spurð hvort 2008 sé árið sem hún „meikaði það“ sparar hún þó stóru orðin. „Þetta orðatiltæki „að meika það“ er svolítið sér- kennilegt. Fyrir mér á það við stóran árangur í þínu fagi og það sem gefur þér meiri frelsi og undir þeirri skilgreiningu, þá var þetta ár mikill árangur í mínu lífi,“ segir hún. Eflaust öfunda hana margir af því lífi sem hún hefur lifað und- anfarna mánuði í Hollywood- hæðunum en Aníta lætur vel- gengnina ekki hlaupa með sig í gönur. „Það er einstök tilfinning að sjá að maður geti uppskorið það sem maður sáir. Ég hef samt aldrei þurft að hafa svona hug- fast hvað ég vil, með hverjum og á hvað ég trúi!“ segir Aníta og bætir við: „Það er stundum þannig að því hærra sem maður klífur því mikilvægara er að hafa fæturna á jörðinni. Fyrir mig þýðir það að hafa markmið mín mjög hugföst, að skapa um- hverfi þar sem ég get haft list- rænt frelsi með því fólki sem ég dáist að og líkar við, og að geta haft fjölskylduna mína í kringum mig.“ Bónorð á mörgum tungumálum Vinnan að Journey to the Cent- er of the Earth tók þó mikið af Anítu, bæði við gerð myndarinnar sjálfrar og ekki síst kynning- arstarfsins í kjölfarið. Aníta segir þá reynslu að mörgu leyti hafa verið undarlega og jafnframt skemmtilega, hún hafi einkennst af endalausum viðtölum, stílistum og jafnvel bónorðum á nokkrum mismunandi tungumálum. „Fólk alls staðar í heiminum var mjög forvitið um Ísland og þar sem rætur mínar virðast verða sterkari því lengur sem ég er í burtu, þykir mér gaman að segja frá okkar litla en öfluga samfélagi, rótum okkar og nátt- úrunni sem mér finnst að eigi svo stóran þátt í að mynda okk- ur sem þjóð,“ segir Aníta sem er þó ekkert á leiðinni að flytja heim á næstunni því nú þarf að hamra járnið á meðan það er heitt. Fljótlega hefjast tökur í Fíladeflíu á næstu mynd hennar, The Storyteller, þar sem hún vinnur m.a. með leikaranum Wes Bentley og segist hún hlakka til að geta byrjað aftur að vinna fyrir framan myndavél- arnar. „Mér finnst samt mik- ilvægt að vanda valið á næsta verkefni sem ég tek að mér og er því að funda með fólki sem mér þykir athyglisvert og kann að fara með sögur sem mér þyk- ir vænt um.“ Mikilvægt að hafa fæturna á jörðinni  Aníta Briem naut mikillar vel- gengni á liðnu ári Leikkona Fljótlega hefjast tökur í Fíladelfíu á næstu mynd Anítu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.