Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 Vonandi er uppákoman við HótelBorg á síðasta degi ársins ekki vísir að því sem koma skal nú á nýju ári.     Það er ekki annað hægt en aðkalla það skrílslæti þegar fólk er farið að beita ofbeldi til að koma málstað sínum á framfæri og eyði- leggja eigur annarra.     Það er ekkiannað hægt en að kalla það heigulshátt þegar fólk hylur andlit sitt og í krafti nafnleyndar kast- ar steinum í átt að lögreglu með þeim afleiðingum að lögreglumaður kinnbeins- brotnar.     Það er ekki annað hægt en aðkalla það aðför að tjáning- arfrelsinu þegar útsending fjölmið- ils, í þessu tilviki Stöðvar 2, er stöðv- uð þegar spyrja á forystumenn stjórnmálaflokka um ábyrgð, stöðu og horfur í íslensku samfélagi á þessum erfiðu tímum.     Það hafa verið unnar skemmdir áhúsnæði Hótels Borgar og líka á okkar tækjabúnaði. Þetta eru um- talsverðar skemmdir. Verst er þó að mótmælendur skuli hafa látið reiði sína bitna á tæknifólkinu,“ sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson stjórn- andi Kryddsíldar á Stöð 2 í samtali við mbl.is á gamlársdag.     Lögreglan hefur sýnt þessum litlahópi ólátafólks ótrúlegt umburð- arlyndi. Fólk hefur komist upp með margt án þess að gripið hafi verið til aðgerða gegn því.     Það er í sjálfu sér gott að fólk fáiákveðið svigrúm til að láta skoð- un sína í ljós. Hins vegar var gengið of langt á gamlársdag: Uppákoman var engum málstað til framdráttar. Sigmundur Ernir Rúnarsson Skrílslæti á síðasta degi ársins                      ! " #$    %&'  (  )                     *(!  + ,- .  & / 0    + -                 !   ! !!    " " #" !# 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  ( $ %       ""&  &&    !!  !!  !! !! :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?   #%% $#%  %# %#                                      *$BC                         !  " #      $       *! $$ B *! ( ) * " !") " ! !  +  <2 <! <2 <! <2 ( * & ", -". &/  D2 E                   6 2  %    & '   $         ()           "     B  *    &    '    ' +( , $ ,   - )  *  %       .   &        $        0  $ %  -"    !       01&&!" "22 &" "3  ! ",  Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að forsætisráð- herra hafi verið skylt að auglýsa embætti skrif- stofustjóra nýrrar efnahags- og alþjóðafjármála- skrifstofu hjá ráðuneytinu. Honum hafi verið óheimilt að setja Björn Rúnar Guðmundsson hag- fræðing í embættið til tíu mánaða án þess að aug- lýsa stöðuna. Tilkynnt var um ráðningu Björns Rúnars í lok október síðastliðins og er honum ætlað að gegna stöðunni frá 1. nóvember 2008 til 31. ágúst 2009. Ákvað umboðsmaður Alþingis að eigin frumkvæði að taka til athugunar hvort embættið hefði verið auglýst laust til umsóknar. Féllst hann ekki á þau rök ráðuneytisins að vegna aðstæðna í efnahags- lífinu hefði verið rétt að víkja frá auglýsingaskyldu til að flýta því að embættið hæfi störf. Umboðsmaður tekur fram að miðað við dóma- framkvæmd séu ekki líkur á að embættissetningin yrði metin ógild en þeim tilmælum er beint til for- sætisráðuneytisins að það leiti leiða til að bæta úr þeim annmarka sem var á ákvörðun um setningu skrifstofustjórans, og þá eftir atvikum með því að auglýsa embættið. „Með tilliti til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í efnahags- og atvinnumálum hér á landi og þar sem fyrir liggur að breytingar hafa þegar orðið á at- vinnuhögum fjölmargra landsmanna, og líkur eru á því að einstaklingum sem ekki hafa fasta atvinnu fjölgi á næstunni, tel ég ástæðu til að koma því al- mennt á framfæri við stjórnvöld að þess sé sér- staklega gætt að fylgja reglum um auglýsingar á lausum embættum og störfum hjá ríkinu,“ segir í niðurlagi álitsins. Óheimilt að ráða án auglýsingar Forsætisráðherra var skylt að auglýsa embætti skrifstofustjóra hjá ráðuneytinu AÐ venju fór svifryksmengun um áramót langt yfir heilsuverndar- mörk. Á nýársdag mældist meng- unin mest við Melatorg í Reykja- vík. Heilsuverndarmörk svifryks eru 50 míkrógrömm á rúmmetra, en mengunin við Melatorg mældist 425 míkrógrömm á rúmmetra fyrstu klukkustund ársins. Svifryksmengunin mældist svo aftur yfir heilsuverndarmörkum við Melatorg á hádegi. Mengunin mældist 300 míkrógrömm á rúm- metra á Grensásvegi og 200 mík- rógrömm í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum. Sólarhringurinn allur var þó undir mörkum sem er í fyrsta sinn í mörg ár sem nýárs- dagur er innan marka. Á árinu 2008 mátti svif- ryksmengun fara 18 sinnum yfir heilsuverndarmörk samkvæmt reglugerð, en það fór 25 sinnum yf- ir heilsuverndarmörk á árinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mengun Það hvessti eftir miðnættið en við það dró úr menguninni. Loftmengun í Reykja- vík langt yfir mörkum Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.