Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi, Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin, Hagkaup, Nóatún, Lyfjaval, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land. Ekki gleyma að drekka Birkisafann frá um hátíðarnar Safinn virkar vel á eðlilega úthreinsun líkamans Lífrænt ræktaður, án aukaefna Losar bjúg Léttir á liðamótum Losar óæskileg efni úr líkamanum Góður fyrir húð, hár og neglur Blanda má safann með vatni Má einnig drekka óblandað Velkomin að skoða www.weleda.is leysi orðið mest hjá ungu fólki. Á þessu tímabili hafi atvinnuleysi jafnan aukist nokkuð um áramót en síðan dregið úr því eftir því sem á árið líður. Vinnumálastofnun reiknar með því að svipað verði upp á teningnum nú. Efnahags- horfur séu þó verri nú en þá og því verði atvinnuleysið nokkuð meira. Spá Seðlabanka Íslands, sem fjár- lög Alþingis tóku meðal annars mið af, gerir ráð fyrir svipuðu at- vinnuleysi og Vinnumálastofnun eða um 10 prósent í lok ársins. Starfsmenn Vinnumálastofnunar byggðu skýrslu sína um vinnu- markaðinn meðal annars á tölu- legum upplýsingum frá Hagstof- unni, Seðlabanka Íslands, fjármálaráðuneytinu og niðurstöðu fjárlaga. Einnig er hún byggð á samtölum við forsvarsmenn fyr- irtækja. AÐ MATI Vinnumálastofnunar mun atvinnuleysi aukast hratt á næstu mánuðum og verða mest í sumar samhliða því að námsmenn koma út á vinnumarkaðinn eftir að skólahaldi lýkur á þessari önn. Samkvæmt skýrslu Vinnu- málastofnunar er talið að atvinnu- leysi geti orðið 9 til 10 prósent á vormánuðum. Yfir hásumarið og í haust mun það síðan minnka og verða 7 til 9 prósent. Stofnunin reiknar með því að það verði með- alatvinnuleysi ársins. Í skýrslunni kemur fram að með- alatvinnuleysi verði mest meðal fólks á aldrinum 18 til 24 ára. Það verður mest um 13 prósent að því er fram kemur í tölulegri úttekt í skýrslunni. Í skýrslunni er vitnað til þess að í niðursveiflu í efnahagslífinu á ár- unum 2001 til 2004 hafi atvinnu- Spáir að atvinnuleysi geti orðið 9-10% á vormánuðum Eftir Andra Karl andri@mbl.is „BYRJAÐ var að beita úðanum þeg- ar fólkið braut niður hurð sem veit inn í gamla framanddyrið. Það hefði getað komist um allt hús ef við hefð- um misst það inn. Því var okkur ekki til setunnar boðið lengur og urðum að drífa þetta af einn, tveir og þrír,“ seg- ir Arnar Marteinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins, um aðgerðir lögreglu þegar fjöldi fólks reyndi að brjóta sér leið inn á Hótel Borg á gamlársdag. Fólkið reyndi að trufla útsendingu Stöðvar 2 á umræðum flokksformanna í Krydd- síldinni og rofnaði útsendingin þegar skemmdir voru unnar á tækjabúnaði stöðvarinnar. Fjöldi fólks fékk yfir sig piparúða lögreglunnar og svaraði það með því að kasta öllu lauslegu í lögreglumenn. Kantsteini var hent í andlit eins þeirra með þeim afleiðingum að hann kinn- beinsbrotnaði. Sá sem kastaði fannst ekki en Arnar segir slíkt ekki liðið. Málið er í rannsókn og fer lögreglan m.a. yfir upptökur af óeirðunum. Þrátt fyrir allt er Arnar ánægður með hvernig til tókst. „Í heildina séð er ég það. Kannski vegna þess að ég veit ekki til þess að neinn af mótmælend- unum – ef hægt er að kalla alla það – hafi meiðst. Samkvæmt því má halda því fram, að við höfum ekki beitt sterk- ari meðulum en þurfti. Menn þurftu aðeins að fara í bað og þvo sér í framan og voru jafnheilir aftur.“ Arnar er hins vegar mjög óánægð- ur með meiðsli lögreglumannsins. „Þegar grjóthnullungi er kastað inn í hóp af fólki þá er lífshætta á ferðum. Það er algjörlega óásættanlegt. Þetta er í skoðun hjá okkur og við förum yf- ir okkar vinnubrögð í kjölfarið.“ Þrír voru handteknir fyrir að neita að hlýða fyrirmælum lögreglu og var þeim sleppt að loknum yfirheyrslum. Ekkert lát virðist vera á mótmæl- um og svo virðist sem meiri harka sé að færast í mótmælendur. Arnar seg- ir álagið vissulega mikið að und- anförnu og árið hafi verið sérstakt að því leyti að mótmælin eru að breyt- ast. „Við erum að fara inn í óvissu- tíma. Við þurfum að skoða þetta vandlega og aðlagast breyttum tím- um.“ Óskipulögð mótmæli Mótmælin við Hótel Borg voru svokölluð óskipulögð mótmæli. Efnt var til þeirra m.a. með skilaboðum á samskiptasíðum, s.s. Facebook. Einn- ig hefur mikil umræða orðið um mót- mælin á vefsvæðum einstaklinga og sitt sýnist hverjum um aðgerðir lög- reglunnar. Ber flestum þó saman um að hlutirnir hafi gerst afar snögglega og mótmælendur hafi ekki haft næg- an tíma til að komast undan gasá- hlaupi lögreglunnar. Þess má í lokin geta að í dag verður efnt til 13. útifundarins á Austurvelli. Þar ávarpa Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Dóra Ísleifsdóttir fundinn. Morgunblaðið/Júlíus Portið rýmt Eftir að mótmælendur voru reknir út af Hótel Borg grýttu þeir m.a. lögregluna með kantsteinum. Lögreglan rýmdi í kjölfarið stærra svæði. Réttlætanleg beiting úða Aðalvarðstjóri hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins segir lögreglu ekki hafa beitt sterkari meðulum en þurfti við Hótel Borg enda hafi enginn mótmælandi meiðst Morgunblaðið/Júlíus Aðhlynning Á þriðja tug manna fékk á sig piparúða sem þurfti að skola burt. STEFÁN Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir lögregluna bregðast við þeim verkefnum sem upp koma. „Ég geri ráð fyrir að menn hafi mismunandi skoðanir á því hvort lögregla hafi verið of hörð eða lin, en við bregðumst við í samræmi við tilefnið hverju sinni. Okkar hlutverk er að halda uppi lögum og reglu og það er það sem við gerum.“ Spurður um hvort hann telji viðbúnað lögreglunnar hafa verið nægileg- an á gamlársdag, s.s. með það fyrir augum að tilkynnt hafði verið um mót- mælin og að trufla ætti útsendingu þar sem ráðamenn þjóðarinnar sátu á rökstólum, segir Stefán alltaf hægt að velta upp slíkum spurningum, sér- staklega eftir það sem síðar gerðist. Höldum uppi lögum og reglu TEKJUSKATTUR einstaklinga hækkaði úr 22,75% í 24,1% nú um áramót. Á sama tíma hækkaði per- sónuafsláttur úr 34.034 kr. á mán- uði í 42.205 kr. og nemur sú hækk- un 24% milli ára. Samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu fjármálaráðu- neytisins er annars vegar um að ræða hækkun í takt við breytingar á vísitölu neysluverðs sl. 12 mánuði, og hins vegar fyrsta áfanga af þremur í hækkun persónuafsláttar, sem er hluti af þeim skattaaðgerð- um sem ríkisstjórnin samþykkti á síðasta ári. Alþingi samþykkti þá nýlega að hámarkshlutfall útsvars yrði hækk- að úr 13,03% í 13,28% og geta sveit- arfélög því nú ákveðið útsvar á bilinu 11,24% til 13,28%. Ætla 54 af 78 sveitarfélögum að leggja á há- marksútsvar og nýtir eitt þeirra sér sérstakt 10% álag sem þýðir að út- svarshlutfallið verður 14,61%. Þrjú sveitarfélög leggja þá á lágmarks- útsvar og eitt hefur ákveðið að lækka útsvarshlutfallið frá því sem var á þessu ári. 24% hækk- un persónu- afsláttar RÍKISSTJÓRNIN naut fjögurra prósentustiga meira fylgis í desem- ber síðastliðnum en mánuði fyrr og mældist stuðningur við stjórnina 36%, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Vinstri hreyfingin – grænt fram- boð mældist með mest fylgi eða 29%, þó hafði flokkurinn misst þriggja prósentustiga fylgi frá því í nóvem- ber. Stuðningur við Samfylkinguna minnkaði einnig um þrjú prósentu- stig milli mánaða og mældist hún með 28% stuðning í desember. Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn jókst um fjögur prósentustig frá því í nóvem- ber og mældist flokkurinn með fylgi fjórðungs kjósenda í desember. Fylgi annarra stjórnmálaflokka breyttist lítið milli mánaðanna nóv- ember og desember 2008. Stuðning- ur við Framsóknarflokkinn mældist 8% í desember og 4% kváðust ætla að styðja Frjálslynda flokkinn og jafnstórt hlutfall studdi Íslands- hreyfinguna – lifandi land. Tæplega 3% svarenda kváðust ætla að kjósa eitthvað annað en þá flokka sem buðu fram í síðustu kosningum. Niðurstöðurnar voru unnar úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði 27.11-28.12. sl. Úrtakið var 4.352 manns og svarhlutfall rösklega 62%. Tæplega 13% svarenda tóku ekki afstöðu eða neituðu að gefa hana upp. Rúmlega 16% sögðust myndu skila auðu ef kosið væri í dag. Fleiri styðja stjórnina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.